Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Samsung NC20 + Palm pre
31.1.2009 | 13:23
Úff mig langar í þettta tvennt:
Fartölva sem er "nóg".
http://www.engadget.com/2009/01/29/samsung-nc20-sees-foreign-review-universal-appreciation/
Samsung NC20 12.1" tommu netbook, eða ódýr fartölva. Intel skilur víst ekki af hverju allir flykkjast í að kaupa netbooks.. Hverjir vilja ódýrar fartölvur?? Haha, stundum elska ég kaptalisman í Intel. En já þetta er 500-600 USD tölva, með eins kjarna örgjörva (hægur), 1GB minni (lítið) með 160GB harða disk (fínt) og þremur USB tengjum. Ekkert geisladrif, en það er hægt að nota minniskort. Þessi tölva er samt alveg feikinóg fyrir allt nema leiki og þunga vinnslu. En þeir sem þurfa bara netið, office og svona ættu að vera í góðum málum.
Svo er það síminn sem sjokkaði á CES2009
http://www.engadget.com/2009/01/30/another-pre-hands-on-video-with-palms-vp-of-design/#continued
Palm Pre er touch sími frá Palm. Það var enginn að búast við neinu frá þeim, enda hafa þeir ekki beint verið þekktir fyrir mikla nýsköpun eða framúrskarandi hönnun. Þarna koma þeir hinsvegar með mjög framsækinn síma. Kíkið á vídjóið í linknum að ofan! Síminn er með slide out qwerty lyklaborð, mjög flott WebOS stýrikerfi. Eina sem böggar mig er að það er ekki minniskorta slot, en hann er með innbyggt 8GB minni og 3,5mm jack fyrir headphone. Og já, hann notar conductive charging, AKA þráðlaust rafmagn! :D það er awesome. Sjá meira hér. http://www.palminfocenter.com/news/9668/palm-announces-the-palm-pre-smartphone/
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

