Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Klikkuð mix

Jæja, ég er búinn að vera duglegur að rækta hypem.com sl. 2 vikur og er búinn að finna fullt af góðum remixum. Ég verð auðvitað að deila því með ykkur, því ég er með svo rosalega góðan tónlistarsmekk og yfirburðarhæfileika í því að gagnrýna.

Skemmtilegasta mixið er án efa Wild Strawberries með PNAU mixað af Sam La More. Þetta er blússandi electro. Upprunalega útgáfan, en ekki eins villt! Hljóðin er mjög skemmtileg og hörð, sem kemur manni fljótt í stuð. Söngurinn er afskræmdur á mjög sexy hátt. Flott lag, en kannski aðeins of hart fyrir hjartveika.

Divine með Sebastien Tellier fékk verðskuldaða athygli á Eurovision og er eiginlega fyrsta "góða" lagið í Eurovision. Ég datt inn á rosalega mix á því lagi frá Danger, eiginlega eitt flottasta remix af lagi sem ég hef heyrt. Mér finnst það eiginlega bara betra en original :D En já, það er í sama electro fíling og villtu jarðaberin að ofan.

Tobbi félagi minn benti mér á Lykke Li þannig ég fann auðvitað brilliant mix frá Familijen á laginu Breaking it up. Lykke Li er tveggja manna band frá Skáni sem eru með svona voða krúttlega indie tónlist. Bandið snýst auðvitað um stelpuna sem syngur, en hún heitir Li Lykke. Lykke Li lofar mjög góðu og ég mæli með Little bit frá þeim/henni.

Ég fann Justice remix af Klaxons lagi sem heitir As Above, So Below, sem ég bjóst nú ekki við mig af.. en ég er svo að fíla taktinn og hljóðin í þessu mixi! Minnir mig á Bevery Hils Cop :D

Síðasta mixið er frá sama bandi og það fyrsta: PNAU. Ég er mjög hrifinn af því bandi og er sérstaklega ánægður með komu þeirra á Airwaves. Ég tek líklega plötudóm með þeim bráðlega. En mixið er af lagi sem heitir Baby, sem er mjög krúttlegt og skemmtilegt lag. Það minnir mig óneitanlega á D.A.N.C.E með Justice (söngurinn útskýrir það). Lagið er mixað af Breakbot og er nú ekki betra en upprunalega útgáfan, en þó nokkuð góð!

Jæja, þetta er allt á hypem.com ef þið hafið áhuga. Happy hunting!


Öllu gríni fylgir einhver alvara

Baggalútur geta verið rosalega fyndnir stundum.

 Þarna hinsvegar fylgir smá alvara ;)

 Síðasti punkturinn er mjög góður.


Dell Inspiron Mini

Dell hefur ákveðið að skella sér út á nýjan markað: netbooks markaðinn.

Dell Mini Inspiron 2

Netbooks eru low cost + ultra portable fartölvur. Mosi kallar þær SSD tölvur, sem er mjög skemmtilegt rangnefni.. jafnvel þó þær innihaldi solid state diska stundum, þá það ekki aðalmálið. Það eru til tvær týpur af svona litlum fartölvum: ódýrar (eee pc, acer aspire one, inspiron mini) og dýrar (macbook air, thinkpad x300). Þær ódýrari eru kallaðar netbooks og þær dýrari ultra portable laptops. Solid state diskar þurfa minna rafmagn henta því netbooks mjög vel. Það er hinsvegar hægt að fá svona vélar með venjulegum fartölvu diskum.

Ég verð að viðurkenna að þetta concept heillar mig talsvert. Fyrir 45þús kall í USA þá færðu netta litla fartölvu sem er fullkomin til að glósa á, svara póstum, varpa á skjávarpa og ferðast með. Eina sem hræðir mig er smæð skjásins og upplausn han (1024x600)

Ég er ekki viss um að svona lítill skjár sé nóg fyrir mig.. en það heillar mig talsvert að vera með 1kg þunga fartölvu með 3,5 klst rafhlöðu! Á tölvunni er ethernet tengi, 3x usb og SD memory slot. Tölvan býður bara upp á SSD diska (4, 8 og 16GB) sem eru enn mjög litlir miðað við venjulega diska en þær hafa ýmsa kosti (minna rafmagn, fyrr í gang og fleira skemmtilegt). Netbooks markaðurinn ætti samt að örva framleiðslu SSD og hefur Intel ákveðið að koma inn á þann markað, sem mun án efa lækka verð og stækka diskana á næstunni.

Ly 8660 dellmini9 klaborðið á Inspiron Mini er áhugavert. Það er frekar stórt og þægilegt í notkun. En til þess að hafa það svona stórt var F-takka röðin alveg tekin burt en hægt er að nota þá með Function takkanum sem seinni lyklar annarra lykla. Hinsvegar vantar F11-12! Skrítið, en sniðugt approach. Tölvan er að sjálfssögðu með þráðlaust netkort. Þessi tölva notar Intel Atom örgjörvan, sem er sérstaklega hannaður fyrir netbooks tölvur (low voltage + small form factor).

Netbooks eru sniðugar og ég er mjög hrifinn af verðinu. Ég held svona tölva myndi henta mér ágætlega í námi en ég sjálfur myndi alltaf eiga borðtölvu eða þá alla vega stærri skjá heima hjá mér til að vega á móti svona tölvu. Ég veit ekki hvernig hún myndi fúnkera í vinnu, án þess að nota borðtölvur líka. Ég held að svona tölva myndi skíta á sig þegar ég væri að svara póstum (mörgum, teikna eitthvað í visio, opna CRM og fleiri heimasíður. Hún gæti samt verið góð í að taka fundargerðir og kannski svara einhverjum póstum.


Viðbjóður

Úff, það er sjaldan sem myndrænt efni hefur svona áhrif á mig. Ég opnaði þetta sketch rétt áður en ég fór í lunch með Mosa... við fórum ekki á MacSteikhús það hádegið (en svo fórum við á mega sveittan stað, förum ekki út í detail).

Annars sá ég hrikalega vonda mynd um daginn sem heitir Men behind the sun (skemmtilega ranglega  titlað Man behind the sun) sem kemur frá Japan og er frá árinu 1988. Myndin gengur út á að sýna ýmsar pyntingar í japanskri herstöð í seinni heimstyrjöldinni. Ég venjulega mikið fyrir þetta genre (hryllingsmyndir) en þessi mynd var bara ómannlega vond.

Það er samt ótrúlegt hve mikið fólk sækir í viðbjóð, sérstaklega eftir YouTube byltinguna. Eitt það versta sem ég hef séð er langt myndband af mjög stórri margfætlu að éta litla sæta mús. Ég ætla ekki að linka það vídjó, en ég er viss um að margir kannist við það.  Margfætlur eru reyndar eitt það viðbjóðslegasta sem ég veit um.. þannig ég er frekar biased.


Allir á Airwaves!

Ég vona að sem flestir í kringum mig fari á Airwaves í ár, því lineuppið lofar virkilega góðu. Ekki bara er fullt af góðum íslenskum böndum (eins og Gus Gus, motion boys, Hjaltalín, Steed lord, UMTS,...) heldur er mjög flott útlenskt lineup.

Ég er hvað spenntastur fyrir Crystal Castles sem eru "nýliðar" (byrja upp úr 2003). Þetta er snilldar dúet sem spilar frekar hart electro, eða indie electro og notar ýmis skemmtileg hljóð sem minna mikið á tölvuleiki. Platan þeirra (Crystal Castles) er öll góð! Ég mæli sérstaklega með Alice Practice og Loving and Caring. Þetta er uppáhalds electroið mitt í ár.

Familijen lofar auðvitað góðu. Mér fannst reyndar platan þeirra ekki eins solid og ég vonaðist til, en það vilja margir meina að hún sé nú samt "meistaraverk" (hjalti bróðir). Það ætti samt að vera spennó að sjá þá live!

P'NAU er ástralskt band sem ég er algerlega búinn að falla fyrir. Diskurinn þeirra brilliant (samnefndur)! Fullt af lögum þar sem ég digga. Þetta er electro rock og minnir mig frekar mikið á Justice (þeir eru einmitt með svona kórsöng eins og í D.A.N.C.E í einu laginu sínu). Uppáhaldslagið mitt er líklega Lover. Mæli þeim í botn! :D 

Simian mobile disco er líka voða fínt. Get ekki sagt að það sé innihaldslaust, en þetta er alla vega mjög örvandi tónlist (fínt í ræktina og visio vinnu). Gæða electro mjamm jamm. Mæli með laginu Hustler laginu þeirra, það er töff.

Yelle, eins og áður hefur komið fram, eru æði! Ég sá þau á Sónar og fílaði þau í botn. Þau voru fyrsta giggið það kvöld og þau fengu mig til að dansa mig sveittann. Þau spila spila krúttlega skemmtilegt electro með ljúfri franski söngkonu. Ég mæli með lögunum Cause des garcons og 85a.

Svo tók ég mig nú til og athugaði fleiri bönd sem voru þokkalega: Young knives, Robots in Disguise, These new puritans og Junior boys. Ágætis uppfylliefni, en annars ganga nú slatti af íslenskum böndum fyrir.

Sjáumst á airwaves!

 


Unnsteinn farinn

Unnsteinn er farinn til Hollands og ég er einn eftir í Álfheimum. Ekki hefur gengið að finna góðan leigjanda, en ég hef ekki enn gefist upp. Ef ykkur vantar að leigja herbergi, verið í bandi. Ef þið eruð á leiðinni í sambandsslit og vantar herbergi, verið í bandi! :D

Ég er byrjaður í skólanum aftur og er í mjög skemmtilegri áfangablöndu:

  • Tölvukerfi og markaðsmál - Þriðja árs tölvunarfræðiáfangi
  • Lögfræði A- Annars eða þriðja árs viðskiptafræðiáfangi
  • Rekstrarhagfræði I - Fyrsta árs viðskiptafræðiáfangi.

Mér líst bara ágætlega á þessa áfanga og stefni á að rúlla þeim öllum upp! Mér finnst þetta líka ágætisblanda. Það eru 400 nemendur í rekstrarhagfræði, 350 í lögfræði og 5 í tölvukerfi og markaðsmálum! Það er lúxus af fá loksins að sitja svona fámennan tíma og hafa gott aðgengi að kennaranum, ágætis mótvægi miðað við hina áfangana.

Ég er í átaki í ræktinni og ætla mér að ná þessum aukakílóum af mér fyrir jólin. Stefni á 65kg! Annars var ég að spá í því að kveðja Laugar á næstunni og fara yfir í Háskólaræktina. Það er verðsamanburður sem kemur ótrúlega vel út fyrir Háskólann, 6.500 kr vs ~50.000 kr. per ár. Það er hinsvegar eilífðar uppsagnarfrestur (6 mán) þannig þetta er ekki að fara gerast á eftir, en þarna myndi ég græða slatta per ár. Það er jú næstum því kannski ef ekki kreppa!?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband