Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Vantar leigjanda

Jæja, nú fer Unnsteinn að fara út til Hollands og við höfum því ákveðið að leigja út "skrifstofuna" eða barnaherbergið eins og það myndi kallast hjá gagnkynhneigðum pörum.

Íbúðin er náttla fabulous og ég er æðislegur í sambúð. Spyrjið bara Unnstein (bíddu, er hann ekki að flýja land?).

Þeir sem hafa áhuga endilega verið í bandi. 


Sónar 2008

Ég fór á tónlistarhátíðina Sónar (2008) ásamt vini mínum Mosa (og vini hans Ómari), sem er haldin í Barcelona.

Maður er greinilega orðinn vanur góðu og jafnvel pjattaður eftir tvær Roskilde tónlistarhátíðir.. það vantaði ýmislegt upp á skipulag á Sónar. Það var 1 hraðbanki, sem var bilaður. Það þurfti fyrst að kaupa "tickets" fyrir áfengi í langri röð og svo fara aðrar raðir til að fá áfengi. Það var bara seldur einn bjór og það var official sponsorinn, Budweiser (USA), sem er auðvitað ódrekkanlegur! Þannig maður drakk nokkuð lítið.

Það voru fjórir venues, og þeir voru allir á sama stað, allir undir sama þaki. Þetta var sumsé svona stór expo höll í úthverfi Barcelona. Það var náttla mjög gott, þá rignir alveg pottþétt ekkert á mann (Roskilde '07 anyone?). Það var mjög þægilegt að komast á milli tónleika og það var alls enginn troðningur á þeim sjálfum.

En já, við vorum komnir til að hlusta á tónlist. Ég ætlaði að checka á Roisin Murphy, Yelle, Neon Neon, Hercules and Love Affair og Justice. Ég náði þeim öllum (og fleirum böndum), en var vægast sagt fyrir vonbrigðum með Roisin Murphy og Hercules.. 

Roisin notaði ekki electro hljóðin sín, heldur lét spila allt á alvöru hljóðfæri, sem kom hrikalega út :( Hún var hinsvegar mjög töff á sviði. Skipti um föt með því að láta sig detta flata á gólfið, og svo komu bakraddirnar með nýtt dress. Cheap, fast and effective :) Hún er auðvitað með flott rödd og maður fékk alveg að heyra það þarna. Ég missti af seinni hálftímanum hjá Justice útaf henni, sem var nokkuð slæmt, þar sem Justice voru klikkaðir live.

Hercules voru 20 mín of sein á svið og ég gat ekki séð Anthony. Það kom engin Anthony. Vocalsið hans var sungið af tveim stelpum, sem var alls ekki það sama. Við fórum snemma það kvöld eftir að hafa heyrt Blind sungið af þessum tuskum :(

Yelle var skemmtilegasta sem ég sá á Sónar. Söngkonan er mjög skemmtileg á sviði og var í mega flottu outfit-i. Við dönsuðum allan tímann :D

Neon Neon var mjög skemmtilegt, líklega í þriðja sæti á eftir Justice. Það var mjög fyndið að sjá Mar Har Superstar perform-a, ég mæli með því! Mjög skemmtilegt stuff og gott performance. Þau tóku alla gestasöngvarana með sér!

Sónar er skemmtileg hátíð, en það vantar mikið upp á skipulag. Ég mæli með því að kíkja, en þetta er mikið minni hátíð en Roskilde, Glastonbury and so on. Nota bene, ég fór ekki á neina events sem voru "by day". Það eru eiginlega bara dj set. 

P.S.: Vodafone var sponsor númer tvö, sem okkur fannst mjög skondið. Þeir buðu upp á klessubíla á miðju tónleikasvæðinu :)


Tónlist: Stainless Steel 2008

Album cover Stainless Steel er plata frá Neon Neon, sem kom út árið 2008, og er þeirra fyrsta albúm.  Neon Neon kom saman fyrst árið 2005 og er samvinna milli Gruff Rhys (Super furry animals) og Boom Bip (Hip hop-ari). Genre-ið þeirra er líklega "indie electro" og minnir mjög svo á 80s tónlist.

Diskurinn er mjög léttur og skemmtilegur og heillaði mig strax við fyrstu hlustun, enda er ég alltaf svoldið veikur fyrir 80s tónlist. Diskurinn er reyndar alls ekki bara 80s, það eru þarna nokkur lög sem er hiphop lög. Ég var nokkuð skeptískur á þau lög fyrst, en þegar ég sá bandið live á Sónar 2008, þá má segja að þessi lög hafi lifnað fyrir mér (þökk sé Mar Har Superstar).

Það eru 12 lög á disknum sem eru langflest hlustanleg, einu lögin sem ég sleppi eru Neon theme og Sweat shop (sem er mjög leiðilegt lag) . Ég gef venjulega lögum rating inn í mp3 forritinu mínu og þau lög sem skoruðu hæst voru að ná fjórum stjörnum af fimm. Það myndu vera I told her on Alderaan, Trick for treat, Belfast, I Lust U og Michael Douglas. Uppáhaldslagið mitt er I told her on Alderaan, gæti verið Star Wars nafnið.. :) Trick for treat er eitt af hip hop lögunum, sem ég fílað ekki fyrr en ég sá Mar Har Superstar. Hann er ótrúlega ómyndarlegur, lítill, tiltölulega sköllóttur með síttaðaftan og feitur hvítur maður (gæti verið frændi Mosa..?). Ég bjóst við svörtum rappara (af laginu að dæma), en svo kom þessi maður á sviðið. Hann var fullur af orku og sjúklega fyndinn gaur. Checkið á þessu!

  Mar Har Superstar

Eitt lag á sviði fékk mig til að fíla þennan mann, þrátt fyrir núll sex appeal :) 

Ég mæli hiklaust með Neon Neon og þeirra fyrstu plötu. Þetta er ekki hart electro, alls ekki. Þetta er melódískt og skemmtilegt indie electro með 80s fíling. Platan er full af tilvitnunum til 80s tímabilsins, sem er t.d. augljóst í Michael Douglas. Besta lagið er I Lust U sem er sungið af gestasöngkonu, sem er Cate Le Bon, og ég mæli með að fólk checki á því. Lögin er fullt af skemmtilegum hljóðum, vægum hip hop beatum og mjúkum bassa. Neon Neon var líka solid á sviði, enda velþjálfað tónlistarfólk. Þriðja besta atriðið sem ég sá alla vega :)

Ef ég notast við rating skalann minn, úr mp3 forritinu mínu, þá gef ég þessari plötu í held þrjár og hálfa stjörnur af fimm.  stars

 


Kominn heim!

Ég er kominn heim eftir 18 daga dvöl í Katalóníu. Sem myndi þá vera mitt lengsta frí samfleytt erlendis á fullorðinsárum mínum. Ég skemmti mér mjög vel (og eyddi fullt af peningum) :D

 Ég eyddi mestum tíma í Barcelona, ásamt Mosa. Við Mosi nutum Barcelona vel, borðuðum góðan mat og drukkum gott vín. Ómar, vinur Mosa, kom frá Lúxemborg og við skelltum okkur á Sónar tónlistahátíðina. Ég mun fjalla betur þá hátíð seinna. Eftir hátíðina, í þynnkunni, þá skelltum við okkur til Sitges og sáum fallegar strendur :) Sitges er víst hommabær, en ég tók nú aðallega bara eftir fjölskyldum í fríi.. og jú auðvitað Ómari og Mosa :D Þarna fundum við líka voða sætan Vodafone bílskúr!

 Svo kom Unns og hitti okkur í Barcelona, sama dag og Spánverjar voru með rosalega hátíð (Sant Joan, eða Jónsmessunótt) á ströndum Barcelona. Við skelltum okkur auðvitað á ströndina ásamt spænskum vini mínum, og djömmum til 4-5. Unnsteinn ættleiddi einhverjar kanastelpur, sem mér fannst nú ekki verið mikið varið í.. sem voru frá Texas! Þær fóru á sérstakt námskeið áður þær ferðuðust til Evrópu, þar sem þeim var sagt að allir hötuðu kana og þeim var bannað að tala um pólitík erlendis :D Ómar greyið þurfti víst að vakna snemma í flug, en náði því ekki alveg og missti af því :(

 Eftir það, skelltum við okkur til Torredembarra, sem er lítill og sætur bær einni klukkustund frá Barcelona. Þar eyddum við þrem dögum á ströndinni og elduðum saman á kvöldin í íbúð vinkonu móður minnar.  Eftir smá sveitasælu, þá skelltum við okkur til Barcelona aftur og versluðum smá. Við fögnuðum auðvitað sigri Spánverja í EC 2008 í miðbæ Barce, enda var annað varla hægt :D Þeir áttu þetta sannarlega skilið! Auðvitað hélt mér þeim, þetta var liðið sem innihélt flesta myndalegu mennina.

Barcelona er mjög falleg og skemmtileg borg. Það er sko nóg að gera þarna! Við fórum á nokkur söfn, og langaði alveg að fara á fleiri! :D Það er gott djamm þarna og auðvitað frábær matur. Ég mæli með Ambar upp á kaffibarsstemningu og Pla upp á kengúrusteikina! ;D

Unnsteinn komst inn í KaosPilot í Rotterdam! Við héldum upp á það úti og ég gaf honum smá skólagjöf. Ef allt gengur upp, þá flytur Unnsteinn til Holland í þriggja ára nám við skapandi verkefnastjórnun. Til hamingju með það krútt.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband