Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Krúttið 22 ára

Unnsteinn er 22 ára í dag, litla krúttið.

  Unnsi22

 

 

 

 

 

 

 

Til hamingju með það ;)


Change of plans

Jæja, þá er maður aðeins búinn að negla niður dagsskránna í sumar.

Eftir þessi þrjú próf sem ég tek (upplýsingatækni, stjórnun & skipulagsheildir og markaðsfærsla þjónustu) í byrjun maí, þá mun ég að öllum líkindum halda upp á 25 ára afmælið mitt. Ég giska að 10 maí verði fyrir valinu þar sem hálft fyrirtækið verður úti helgina eftir það, sem og ég + hinn helmingurinn af fyrirtækinu verða úti helgina eftir það!

Jújú, við Unnsteinn ætlum að skella okkur til Alicante ásamt 50% samstarfsmanna minna 23-26 maí :) Við munum gista á 5 stjörnu hóteli sem er stutt frá ströndinni. Þetta verður rosa stuð! Það var mjög erfitt að velja á milli ferða (það eru sumsé tvær ferðir, þar sem allt fyrirtækið kemst ekki út á sama tíma). Góðir ferðafélagar mínir fara út í fyrri ferðina (Helga & Mosa) og margir góðir djammfélagar mínir.. en flugið fyrir þá ferð er einmitt á afmælisdaginn minn 16.maí :( Ég ákvað því að skella mér í seinni ferðina svo ég gæti gert eitthvað með fjölskyldu minni og öðrum á afmælisdaginn. Ég fæ samt ekki verri djammhóp með mér í seinni ferðina. Ég fæ alla "flugdólgana" auk Ellu sprellu og fleiri skemmtilega.

Eftir þessa stuttu helgarferð verður farið  til Barcelona (13-30 júní) ásamt Mosa og Unnsteini. Við Mosi ætlum að byrja á því að fara á tónlistahátíðina Sónar. Lineupið gæti ekki verið skemmtilegra og ég er mjög spenntur fyrir þeirri ferð!

Ég þarf að fara læra! Enda stutt í fyrsta prófið. Wish me luck.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband