Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Úps, gleymdi að blogga

Æj, ég gleymdi að blogga, enda hefur verið nóg að gera hjá mér.  Ég afsaka samt bloggleysið og vona að þessi færsla skili einhverju.

Byrjum á fréttum. Ég er ekki lengur þjónustustjóri Nethjálpar. Ég hætti fyrir circa 3 vikum síðan og tók við nýrri stöðu hjá sama fyrirtæki. Ég er núna verkefnastjóri og hef tekið að mér mjög mörg og mjög spennandi verkefni. Ég er ennþá að venjast (og þróa) nýju stöðuna og hef verið að hjálpa þeim sem tóku við Nethjálpinni. Ég hef fulla trú á nýja deildarstjóranum (stýrunni) sem tók við og sé fram á góða tíma :)

Svo borgaði ég 85þús kall fyrir að geta skrúfað niður og upp rúðurnar í bílnum mínum með rafmagni. Hverjum datt í hug að "upphalarar" væru svona dýrir?? Ég sem ætlaði að kaupa mér nýjan bí? Er það ekki í stíl við þennan rosalega viðskiptahalla :D Maður verður að fylgja straumnum. En nei, ég bíð þá aðeins eftir nýjum umhverfisvænum bíl. 

Við Unnsteinn erum næstum búnir að finessera íbúðina. Okkur vantar bara að taka rafmagn og ljós í gegn + innrétta skrifstofuna aðeins betur. Þá er þetta orðið frekar fínt bara.. nema forstofan.

Þessa dagana erum við að reyna skipuleggja sumarfríið. Ég stefni á að taka alla vega 3 vikur samfleytt, sem ég hef aldrei gert. Okkur langar að kíkja til Barcelona og það vill svo heppilega til að ég á frímiða þangað ásamt Mosa. Kannski förum við á tónlistahátíðina Sónar? Svo vorum við að spá að fara eitthvert áfram frá Barcelona, eins og t.d. Slóveníu í gönguferð :D Ég væri alveg til í að kíkja á Julian Alps! Okkur býðst mögulega að leiga íbúð í Barcelona, en hún er víst alveg 4-5 herbergja.. þannig okkur vantar liðsauka. Endilega látið mig vita ef þið viljið kíkja til Barcelona í júní ;) 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband