Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
Britney búin að missa það..
15.9.2007 | 12:36
Shit hvað þetta er slæmt, ég fékk marga kjánahrolla þarna. Hún getur ekki einu mimeað hvað þá dansað! Svo ætti tveggja barna móðir ekki að láta sjá sig í naríum og brjóstahaldara fyrir framan alheim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Flutningar
8.9.2007 | 11:32
Jæja, þá fer loksins að koma að því. Endurbætum á nýju íbúðinni fer að ljúka núna um helgina og ég flyt inn á morgun :D
Við keyptum okkur 68fm íbúð í kjallara í Álfheimum (fjórbýli). Íbúðin er lítið niðurgrafin með björtum og góðum gluggum. Við erum með 2 svefnherbergi og sameiginlegt rými fyrir stofu og eldhús. Sameiginlega rýmið er stórt og gott sem gerir okkur kleyft að halda massa matarboð/partý ;)
Konan sem átti íbúðina á undan okkar hafði keypt hana ágúst 2005 og hafði tekið ýmislegt í gegn þá, en ekki gengið alla leið. Við ákváðum að mála sem flest og klára það sem hún hafði ekki klárað.
Við tókum baðherbergið aðeins í gegn (nýr vaskur, ný blöndunartæki, vaskaskápur og fleira á veggina), parketlögðum master svefnherbergið (reyndar með plastparketi sem er líkt okkar) og fiffuðum eldhúsinnréttinguna aðeins til. Eigandinn hafði gert ráð fyrir litlum ísskáp í nýlegri IKEA innréttingu sem hún hafði keypt 2005, sem kom eiginlega ekki til greina fyrir okkur. Þannig við þurftum að skera aðeins af borðplötunni í innréttingunni og koma ísskáp (1,39M á hæð með frystihólfi) undir skápana, sem kom bara voða fínt út. Svo bættum við skáp til að fela lj*tustu eldavél í heimi (sem bjargar miklu).
Við fengum frábæra innflutningsgjöf frá Ömmu og systrum mömmu, skenk úr IKEA Stockholm línunni sem fellur vel inn í húsgögnin sem Unns er búinn að vera ræna af öfum og ömmum. Stofan okkar verður svona 60's style. Við erum með langan 4 sæta sofa, 2 hægindastóla og fáum svo borð í stíl.
Hitt svefnherbergið verður skrifstofa, sem ég mun nota aðallega þar sem Unns er ólæs.
Við erum búnir að fá fullt af aðstoð frá fullt af fólki og erum mjög þakklátir fyrir það :) Stöllur mínar ollu reyndar vonbrigðum, sem og Mosi litli :P Gangi þeim vel að taka út úr hjálparbankanum! Annars fá Hjalti og Torfi sértök hrós fyrir mikla og góða hjálp. Hjalti á massa inneign hjá okkur Torfa í hjálparbankanum. Svo má auðvitað ekki gleyma Jóa tengdó og Mömmu sem koma sterkt inn enda miklir reynsluboltar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Atli Skólastrákur
4.9.2007 | 22:39
Jæja, ég komst að lokum í HÍ viðskiptafræðina og byrjaði í dag. Ég er voða spenntur en smá kvíðinn því það er svo mikið að gera (eins og sést í blogginu að neðan). Ég tek 9 einingar: stærðfræði, markaðsfræði og stjórnun. Ég hef slatta áhuga á stjórnun og vonast til að geta nýtt mér eitthvað af þessu í vinnu.
Gestur og Bragi verða með mér í einhverju áföngum og ekki er það verra :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Smá update
1.9.2007 | 12:39
Jæja, það er brjálað að gera í vinnunni og bara almennt. Ég er að flytja í nýju fínu íbúðina mína þessa dagana. Við erum að mála og lakka allt. Svo þurfum við að parketleggja og taka baðið í gegn. Við erum komnir frekar langt með þetta allt saman og stefnum á að flytja inn næstu helgi :D
Annars henti ég inn fullt af myndum fyrir fólk að skoða (reyndar allt af nokia símanum). Do check it.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

