Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
Ferðasaga 1
21.7.2007 | 15:36
Já, við Mosi fórum til Stokkhólms. Við höfðum hvorugir farið áður til Stokkhólms og ákváðum í flippi að athuga flug þangað og svo áfram til Köben. Okkur til mikillar gleði þá fengum við jafndýrt flug til Stokkhólms og til Köben (13þús kall ca aðra leið) og svo fengum við mjög ódýrt SAS flug áfram til Köben nokkrum dögum seinna (5þús kall).
Mosi fékk það verkefni að bóka gistingu og eins hans kynþætti er einum lagið þá bókaði hann það ódýrasta. Þannig við gistum á HótelSKIPI. Jébbs, á skipi.. í minnsta herbergi sem ég hef séð með kojum. Einnig þá var baðherbergið það minnsta sem ég hef séð. Maður gat verið í sturtu og á klósettinu á sama tíma. Kíkið á myndasafnið til að sjá skemmtilegra myndir teknar af klósettinu. En þetta var skemmtileg upplifun sem ég mæli hiklaust með.
Við skoðuðum heilmikið í Stokkhólmi, löbbuðum um Gamla Stan, sáum Nobels Akademíuna, sigldum á eyju og skoðuðum Skansen og fengum okkur dýrindismat við Berns Bazaar. Við fórum í nokkrar H&M verslanir og eyddum helling þar :D Við vorum ekki á besta tíma hvað varðar djammið enda vorum við þarna sun-mið, en við kíktum á einn skemmtilegan stað sem var undir berum himni með DJ alveg við sjóinn sem var mjög nice.
Stokkhólmur er æðisleg borg með mjög fallegum byggingum. Við tókum reyndar eftir því að gömlu byggingarnar eru aðeins hærri en gengur og gerist í Köben, en það spillti samt ekki fyrir sólinni. Gamla Stan er mjög heillandi gamall miðbær með flottum byggingum eins t.d. höll og Akademíunni. Ég gæti vel ímyndað mér að búa þarna í framtíðinni.
Eina sem kom mér á óvart með Stokkhólm er hversu lítill og slappur flugvöllur er þar. Þetta er víst nr.1 ferðahöfuðborg Scandinaviu.. Annars var þetta velheppnuð ferð til Svíþjóðar :D
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Yndislegur sannleikur
19.7.2007 | 10:20
Mótmæli missa oft marks. Eins og t.d. mótmælin sem voru stöðvuð á Snorrabraut.. mótmælendur þar voru rosalega hissa að hafa verið stöðvuð.. án allra leyfa. Lögreglan reyndar sýndi frekar mikla óþarfa hörku, en það kemur mér ekkert á óvart miðað við hvernig fólk sækist í þau störf..
Annars er þetta yndislegi sannleikurinn.
P.S.: Er það bara ég sem ég skil ekki anti-kjötætur? Þær vilja að við hættum að slátra kjúklingum og svissum öll yfir í grænmeti vegna þess að kjúklingurinn er að þjást. Come on, ef við hættum að borða kjöt og slátra dýrum þá myndu líklega 2-3 milljarðar manna deyja á nokkrum mánuðum. Já, ég sé það núna, fórnum mannlífum vegna þjáningu kjúklinga og kinda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kominn heim!
12.7.2007 | 20:13
Víi, ég er kominn heim og það gekk allt mjög vel nema flugið heim.
Þökk sé Iceland Express þá biðum við Mosi 7-8 klst. á Kastrup vegna seinkunnar (sem var ekkert útskýrð). Við fengum 100 DKR fyrir mat. Allar búðir og veitingastaðir lokuðu kl 22. og við biðum frá 21:30 til 4:45. Ég held að það fari að styttast í að ég beini viðskiptum mínum annað.
Stokkhólmur var æði og við fengum sól og blíðu. Hótelbáturinn var sniðugur.
Roskilde var blaut en ég er mjög sáttur.
Færeyjar ættu að tilheyra þriðja heiminum og voru martröð.
En ég ætla að blogga betur um ferðina seinna! Varð bara að fá að skíta yfir Expressið aðeins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

