Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
Farinn í frí!
30.6.2007 | 14:28
Ví, ég er farinn í frí til 12. júlí! Ferðaplanið breyttist aðeins, við Mosi ákváðum að fara til Færeyja á þeirra fyrsta GayPride! Þar verða 2 floatar og spáð er fjölmenni (20-30 manns)!
Haha, GayPride í Færeyjum... frekar frýs í helvíti! Nei ég að rugla í ykkur, ferðaplanið er jú það sama og hefur birst hér áður. Fyrst Stokkhólmur 1-4.júlí í túristaferð og svo Roskilde/Köben 5-11júlí á tónlistarhátíð. Veðurspáin er ekki alveg nógu góð, það er spáð rigningu fram til miðvikudags/fimmtudags :/ En ég er bjartsýnn á að það verði súper veður! Annars er það ekki the end of the world ef veðrið suckar, við Mosi flýjum bara heim til systur hans í Köben :D
Jæja, sé ykkur seinna!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Menntasnobb 0, Atli 1
22.6.2007 | 10:33
Újé, ég komst inn í fjarnám í HÍ: Viðskiptafræði, stjórnun og forysta :D án íslensks stúdentsprófs í þokkabót!
Ég skráði mig í 9 einingar og mun sinna 100% vinnu á meðan hjá Vodafone. Þetta verður örugglega erfitt og ég verð að leggja slatta á mig og á Magga (nei djók Maggi :P).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vísindi og rannsóknir
19.6.2007 | 09:48
Ha, er hægt að borga vísindamönnum fyrir rannsóknir? Er hægt að hagræða rannsóknum til að sýna tölfræði í öðru ljósi?
WulffMorgenthaler tók þetta vel fyrir í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gleðikonur Íslands
14.6.2007 | 10:16
Nú hlýtur að vera gullöld fyrir þær fáu gleðikonur sem Ísland hefur upp á að bjóða! Þrjú herskip í einu, það er sko aldeilis hægt að næla sér í officer núna.
Greyið Codex að missa af þessu..
|
Þrjú herskip í Reykjavík |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ferðaplan
12.6.2007 | 21:54
Jæja, þá er komið að því að fara yfir ferðaplan sumarsins 2007.
Ég fór til Roskilde núna síðast og ég hef sjaldan skemmt mér jafnvel. Það gekk allt svo vel fyrir sig, veðrið var frábært, ég kynntist fuuullt af skemmtilegu nýju fólki og uppáhalds bandið mitt stóð sig frábærlega á stærsta sviðinu og á besta tíma! Það var 25-30 stiga hiti allan tímann og logn, sem hljómar frábært við fyrstu viðrun eða það voru smá "drawbacks" (pissurykið, brennd húð og alltof heitur bjór). En þrátt fyrir það, frábær ferð.
Ég ákvað að skella mér aftur á Roskilde og það eru margar góðar ástæður bakvið það. Stelpurnar sem ég kynntist síðast eru að fara aftur (Krista, Valný og "Guðrún") auk strákana sem ég kynntist (Sölvi Sund og Geiri félagi hans) og svo auðvitað slatti frá Vodafone í þetta skiptið (Einar, Geiri og Mosi). Svo er þetta mín fyrsta utanlandsferð ásamt Mosa og ég er mjög spenntur fyrir því. Lænöppið er kannski ekki það besta í mínum bókum, en ég er samt spenntur fyrir því að sjá Björk og Red Hot (sama hversu mainstream það hljómar). Auðvitað er slatti af öðrum böndum sem ég er spenntur fyrir en það stendur samt ekkert það hátt upp úr. En ég þarf kannski að kynnast nýrri tónlist og fæ hann Einar til að hjálpa mér með það!
Við Mosi ætlum ekki einungis að fara til Roskilde, heldur ætlum við að byrja á Stokkhólmi í Svíþjóð. Þangað höfum við aldrei farið og við erum mjög spenntir fyrir því að kynnast þeirri merku borg. Margir hafa reyndar sagt að þetta Stokkhólmur sé mjög svipaður Köben, en það kaupi ég ekki alveg (eitt er víst, Svíarnir eru sætari en helv. Danirnir). Við gerðumst svo djarfir að bóka okkur gistingu um borð í báti! Hótel bátur! Pælið í því... ég vona að við fáum ekki sjóriðuna haha.
Annars er þetta stutt frí, ég fer út 1.júlí og kem heim aftur 11.júlí beint í harkið (ég þarf að leysa af Vaktstjórana mína).
Ég ætla aðeins að spara fríið mitt (þó ég eigi nú ekki alveg fullt frí) svo ég getið tekið smá í haust eða jafnvel fyrir jól. Unnsteinn vill ólmur komast til Kúbu eða eitthvað svoleiðis í haust. Ég er nú reyndar aðeins spenntari fyrir USA eða jafnvel næstu Alpaferð :D Svo sýnist mér einhver stemmari fyrir útilegu hérna heima um helgi eða jafnvel smá roadtrip hjá mér. Ég þarf nú að sækja landið aðeins heim líka..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Árið núll frá Trent vini mínum..
3.6.2007 | 02:02
Nine Inch Nails hafa gefið út nýja langplötu sem kom út febrúar 2007 og heitir hún Year Zero. Á undaverðan hátt þá náði sú útgáfa algerlega að fara fram hjá mér og skammast ég mín hrikalega.
En ég náði að sniffa hana upp þökk sé reddit.com þar sem var grein um markaðssetningu Year Zero. Trent gamli skildi eftir USB lykla hér og þar á ferðalögum sínum um USA og EU, t.d. á klósettum og neðanjarðarlestum sem innihéldu efni af Year Zero. Þetta orsakaði þokkalegt „media hype“ þar sem nokkrir af þessum örfáu lyklum náðu að rata heim á netið til aðdáendanna. Ekki nóg með það heldur stefnir herra Reznor á meira en bara þetta blessaða „media hype“, hann stefnir á mögulega kvikmynd og jafnvel óraunverulegan leik (Hah! Það er gaman að búa til orð: e.g. „alternative reality“). Eins og hann orðaði þetta sjálfur, þá er þetta í fyrsta skipti þar sem tónlist fyrir kvikmynd er smíðuð fyrst og svo kvikmyndin. Ætli greyið hafi ekki brennt sig á Hollywood (eins og Manson?) eftir að hafa verið með theme lagið við Tomb Raider kvikmynd.. sem er btw eina ástæðan fyrir því að ég fór á slíka mynd í bíó..
En já, ofan á þessa svölu markaðssetningu ákvað pungurinn að splæsa í eitthvað hita element . Ef maður spilar diskinn sjálfan í geilsaspilara þá breytir hann um lit! Hann er sumsé hvítur og verður svartur við notkun. Hversu svalt? GMG, ég hljóma eins og lítil smástelpa..
Minna hype, meiri gagnrýni.
With Teeth var mjög góður diskur og ég var frekar sáttur við það framhald af The Fragile (sem er reyndar fáranlega góð plata), þrátt fyrir langa bið. With Teeth þurfti reyndar smá tíma til að venjast og ég bjóst við að hann hefði skipt sér sjálfum út sem vocal fyrir einhverja dömu (eins og margir aðrir), en það var jú ekki að raunveruleika. Fragile tourinn hefur greinilega gefið honum sjálfstraust til að þenja sig enn einu sinni, enda er „all that could‘ve been“ alveg frábær tónleikaplata (og dvd).
Year Zero er betri plata.
En af hverju? Nine Inch Nails heldur áfram að þróast í sinni tónlist og kemur enn og aftur á óvart sem tónlistamaður (þrátt fyrir að hafa spilað á öll níu hljóðfærin á The Fragile!). Hann reyndar tekur skemmtilegt og algengt „stance“ á málefnum líðandi tíma. Hann tekur Georg litla (sá vinsæli forseti) og pakkar honum saman í „Capital G“ og svo valtar hann yfir litla greyið gyðinginn í „God given“ SOUTH PARK STYLE! Hver fílar það ekki á þessum erfiðu og beittu tímum?
Jæja, skellum þessu saman í nett review. Þessi plata er frábær. Það eru örfá lög sem ég þarf að scrolla yfir (1-2) og það eru lög sem hoppa iðulega yfir á (survivalism, capital G, god given, meet your master, the great destroyer) sem á mínum skala er fáranlega gott. Hljóðin sem hann notar eru ótrúlega gróf og svipa til techno beat-a, en ég fílaþa. Góð, gróf og sóðalega solid plata sem allir indust-rokkarar ættu að eignast!
Þessi plata hefur ekki skipt um lit hjá mér í margar vikur enda fer hún ekki úr spilaranum.
Sorry Moran, verð að quote-a Reznor í god given
Wait, step into the light
How can this be right
I'm afraid we're gonna ask you to leave
Guess you cannot win
With the color of your skin
You won't be getting into the Promised Land
This is just another case
You people still don't know your place
Step aside, out the way, wipe that look off your face
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)


