Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Fluttur
31.5.2007 | 17:08
Jæja, ég er fluttur enn einu sinni. Annað skiptið í ár (jafnvel það þriðja?). Að þessu sinni flutti ég í Garðabæinn, nánar tiltekið Beverly Hills.
Þetta er rosa villa í Eskiholti á tveim hæðum með sólstofu og læti. Frekar mikið pláss fyrir þrjár manneskjur, en hver er ég að kvarta yfir þessum lúxus :D
Efri hæðin er mestöll bara stofa og eldhús með heilum vegg af glugga með geðveiku útsýni. Á sömu hæð er bókaherbergi og gestaherbergi (og baði).
Á neðri hæð er stór gangur sem tengist í 2 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahús og tölvuherbergið mitt (mikilvægasta herbergið).
Flutningar gengur mjög vel, en það er slatti eftir af breytingum og fleiri skemmtilegum verkefnum sem ég er eiginlega ekki að nenna (þar sem það er stutt í næstu flutninga).
Ég vona að ég verði hér nógu lengi til að bjóða skemmtilega fólkinu í heimsókn (you know who you are!).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Óvissuferð
28.5.2007 | 18:28
Vodafone bauð starfsmönnum sínum í Óvissuferð sl. laugardaginn og tókst vel til (þó ég segi sjálfur frá). Einhverra hluta vegna héldu allir starfsmennirnir að við værum að fara í annað hvort Adrenalíngarðinn eða Raft (gæti verið tengt því ritari starfsmannafélagsins sé raft guide?).
Auðvitað vorum við á leið í raft en til að brjóta aðeins upp fórum við fyrst í mjög skemmtilega leiki. Það var púslað, reipitogað og fleira sem efldi hópinn með liðum. Okkar lið hét því skemmtilega (og framsóknarlega) nafni Double Penetration, þar sem það þyrfti að velja dónaleg nöfn. Eitt liðið valdi nafnið "Tuddarnir".. veit samt ekki alveg hvað þýðir dónalega séð (rough sex eða nauðgarar?).
Við skelltum okkur ofan í Hvítá og skemmtum okkur mjög vel þar, enda fengum við frábært veður og hópurinn ótrúlega velstemmdur. Þegar við komum upp úr fórum við beint í saunu og heita pottana upp á Drumbó. Ég hef aldrei séð saununa mína* svona pakkaða. Eftir það var boðið upp á kaldan bjór og crazy grillmat (grillað lamb, fyllta sveppi, bakaðar kartöflur.. yumyum).
En ég ætla ekki einungis að tala um gleðina.. því við lentum í boðflennu sem ég verð bara að fá að tala um. Þegar við erum að koma upp úr, þá er annar hópur að klára mat og bjór upp á Drumbó, sem átti að vera farinn kl 20 (við komum rétt fyrir 20). Þar voru 3 menn eftir sem sátu að svambli og einn af okkar starfsmönnum náði aðeins að hlera þá. Einn af þeim var að reyna sannfæra hina tvo um að vera lengur og gerast boðflennur í Vodafone partýinu útaf öllum Vodafone gellunum. Þessir tveir voru klárlega skynsamir menn þar sem þeir ákváðu að yfirgefa svæðið, en sá sem vildi gellurnar varð EINN eftir..
.. hann gekk á liðið og var með tilbúna lygasögu um að hann væri að vinna hjá OG Vodafone í Fellunum (sem hann breytti síðar í OG Vodafone Smáralind). Þessi maður var ótrúlega ölvaður og ótrúlega leiðilegur. Þegar hann var á leið í bjórdæluna okkar þá náði ég aðeins að spjalla við hann.
Hann tilkynnti mér að hann væri að vinna hjá OG Vodafone Smáralind og væri nýbyrjaður. Ég benti honum á að ég væri í stjórn Starfsmannafélagsins og vissi að hann væri ekki starfsmaður Vodafone. Þá breytti hann sögunni í að hann væri starfsmaður Arctic Rafting.. sem ég er einmitt líka :) Ég benti honum enn og aftur að hann væri ekki starfsmaður og ætti lítið erindi í þetta partý. Þá einmitt kom Torfi bróðir og bað hann um að fara hypja sig. Þá sagðist maðurinn vera búinn að hafa samband við "konuna sína" og að hún væri á leiðinni úr sumarbústað rétt hjá að ná í hann. Torfi (og aðrir starfsmenn Arctic Rafting) ítrekaði heimför þessa manns alveg nokkrum sinnum í viðbót yfir kvöldið.
Bara ef konan hans vissi að hann hefði gengið á flestar stelpurnar frá Vodafone og káfað á þeim, verið með dólgslæti og ógeðis stæla. Hann gekk svo hart að einni dömunni að hann fékk bjórglas (sitt eigið glas) í andlitið. Þegar það gerðist þá ákváðu starfsmenn Arctic Rafting að taka af sér silkihanskana og báru manninn út. Þegar út var komið vildi maðurinn endilega fara inn aftur, en tókst það illa til þar sem hann var tekinn hálstaki og snúið niður í jörð.
Stuttu eftir að hann náði að róa sig niður þá kom konan hans til að ná í hann og það var þökk sé því að einn starfsmaður Arctic Rafting náði að fá lánaðan síma mannsins til að hringja. Sá úrræðagóði starfsmaður fletti í gegnum nýlegustu símtölin og var ekki lengi að sjá mynstur þar (konan hans var búin að vera hringja stöðugt í hann og spyrja hvenær hún ætti að sækja hann, en hann lét hana alltaf bíða því þetta væri svo gott partý). Greyið konan, ætli hún viti af þessu í fari mannsins síns?
Þrátt fyrir þetta, þá náðu flestir að skemmta sér, fyrir utan þær stelpur sem lentu harkalega í þessum manni. Ef hann hefur gengið hart á ykkur stelpur, endilega sækið hann til saka! Hann á það skilið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Inngangur
22.5.2007 | 20:32
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

