Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Klám í síma?

Ætlar NOVA að fylgja markaðnum úti og fara selja klám í síma? Alla vega þá hefur sá markaður stækkað upp í 1,4 milljarða dollara þetta árið. "Erotic adult entertainment is big business--sex sells!". Sjá greinina: http://www.news.com/2100-1039_3-6138939.html

Súlustaðurinn NOVA?

 


mbl.is Nova boðar breytta tíma – öll netnotkun í farsímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NOVA

Mikið rosalega er ég ánægður með inngöngumarkaðsherferð NOVA :)

Þetta hlýtur að vera ein lélegasta herferð sem fjarskiptafyrirtæki á Íslandi hefur haldið úti og "Stærsti skemmtistaður í heimi" er slæmt slogon. Mamma mín hélt að þetta væri skemmtistaður og ég hló mikið að því og gerði ráð fyrir því að fólk yfir fimmtugt væri bara að ruglast svona.. en nei nei, litli bróðir hans Unnsteins ætlaði nú að skella sér á tjúttið á NOVA. Nafnið er meira segja skemmtilega líkt "NASA" haha.

Heimasíðan er frekar slöpp og þegar henni var launchað þá voru dauðir linkar, engin verðskrá og ekkert efni. Svo nokkrum dögum seinna var búið að laga fatal villurnar en hún var ennþá jafngagnslaus. Endilega prófið vefverslunina.

Að velja þessa aðferð og velja markhópinn "fólk sem djammar og finnst DJ Nova fyndinn" er alveg stórfurðulegt. Ég hefði nú reynt að byggja upp smá traust á NOVA og 3G tækninni með því að laða að þroskaða neytendur. Jújú, það er peningur í djömmurum og krökkum, en ætlar fólk að reka fyrirtæki á þannig markhópi? Það verður gaman að sjá hvernig NOVA vinnur sig út úr þessu skemmtistaðadæmi. Mig grunar að það sé mögulega frekar erfiður bransi þar sem bæði Vodafone og Síminn eru frekar skemmtileg fyrirtæki..

Og já, MSN í GSM síma hefur verið til í 5 ár :) Virkar voða vel á HTC símanum mínum, en hversu mikið retard þarftu að vera til að stunda MSN á símanum þínum? Og hver þarf myndsímtöl? Ef myndsímtöl væru sniðug þá væru allir sem stunda MSN í tölvunum sínum löngu komnir með webcam. Þeir fáu sem eiga webcam í dag eiga ættinga erlendis eða stunda "voyerism". Hmm, ok, þetta gæti verið fyrir seinni markhópinn.

Ég veit að ég er svoldið biased, en ég hef nú verið að tjatta við fólk sem hefur vit á þessum hlutum og þetta er mjög kjánaleg herferð að margra mati. Ég hef alla vega ekki heyrt einum einasta segja "djöfull maður, ég verð að fá mér farsímaáskrift hjá Stærsta Skemmtistað í heimi!"...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband