Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Statusinn

Jæja, þetta gengur allt. Ég var skammaður fyrir að blogga lítið af Lindu í fyrradag.. sem mér fannst nú ekki sanngjarnt og ég svaraði fyrir mig: "ég bloggaði nú fyrir og eftir London ferðina í síðustu viku" og fékk tilbaka "já en Atli, ég blogga daglega". Linda er ólétt á 9 mánuði og hún hefur nægan tíma.

Ég er á leiðinni í lokapróf í næsta mánuði og tek þrjú próf. Síðasta prófið mitt er 21.des! :( Sem er frekar leiðilegt. Ég á eftir að kaupa circa helming jólagjafa og ætti helst að byrja á því sem fyrst, þar sem ég er með algert óþol á Kringlu og Smáralind (og ætli ég fari þá ekki í miðbæinn bara). Annars með prófin þá stefni ég á að ná markaðsfræði og stjórnun vel, og skríða í stærðfræðinni. Ahhh jól í fullu starfi og 9 eininga námi.. can't wait.

Við Unns stefnum á að halda innflutningspartý og boð (fjölskylduvænna) í desember. Það er hinsvegar ekkert niðurnelgt ennþá. En það ætti að vera skrautlegt partý.. eins og öll okkar partý.

Næst á dagsskrá er að byrja hreyfa mig sem fyrst, ég hef bara svo takmarkaðan tíma eins og er, en það er bara léleg afsökun! :D 


Kominn heim

Júhúúú, ég er kominn tilbaka.

Ég skemmti mér þrusu vel út í London ásamt Helgu skvísu. Það var reyndar fáranlega kalt og ég nældi mér í smá hálsbólgu úti. Það er samt aðallega vegna þess að ég streyttist við að kaupa mér EKKI trefil, því ég týni þeim bara. En ég keypti mér einhver flu&sore throat medicine (over the counter) þarna úti sem svínvirka. 

Annars náði ég (og reyndar Helga líka) að versla slatta úti. Ég verslaði ljós í eldhúsið, slatta í Octopus, tónlist, DVD, diesel jeans, svört jakkaföt með glansandi áferð, svartan leðurjakka með hettu og margt fleira.

Svo fórum við Jana og Helga út að borða á klikkuðum stað, Asia De Cuba. Asískt og kúbversk matarlist splæsuð saman og frábær þjónusta. Ég mæli með þessu fyrir alla, nema hvað þetta er dýrt! Þarna er líka hægt að fá snilldar kokteila, m.a. Passion Jack (Passion fruit og Jack Daniels).

 Geðveik ferð :)

Takk fyrir mig Árni (fyrir gistinguna) og Helga fyrir selskapinn.


London baby

Jæja, "alvöru stefnumótun" er lokið og munum við kynna hana í dag fyrir lykilfólki. Mér líst vel á stefnunar og eru þær skref í rétta átt. Ekki það að ég geti sagt eitthvað meira.

Ég keypti mér miða til London ásamt Helgu Sveins og við förum út núna á fimmtudaginn (hún reyndar á miðvikudaginn) og komum heim næsta þriðjudag. Krúttið fær ekki að fara með sökum óhóflegra utanlandsferða árið 2007. Við Helga ætlum að versla og skoða London. Einnig þá munum við hitt einvalalið vina okkar þarna úti. Ég ætla að hitta á Árna Grétar, Baldvin Albertsson og Dr.Jönu. Planið er að fá þau öll út að borða með okkur eitt kvöldið. 

 Annars gengur þokkalega í skólanum, mikið af skilum þessa dagana en ég vonast til að skila öllu mjög vel af mér. Stærðfræði er hinsvegar ekki að ganga vel, en ég ætla samt að reyna að læra vel fyrir lokaprófið.

Íbúðin er næstum ready og það eru bara litlir leiðilegir hlutir eftir (sem við getum lifað án). En við stefnum á að klára hana fyrir jólin og bjóða fólki í innflutningspartý. Þau verða líklegast nokkur partý: eitt fyrir Vodafone, eitt fyrir Kaffiheim, eitt fyrir fjölskyldu og eitt fyrir nána vini.. partý! :) Fólk er víst byrjað að vera óþolinmótt..


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband