Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Busy boy
10.10.2007 | 10:39
Vá það er búið að vera svo mikið að gera.
Ég skilaði af mér mínu fyrsta hópverkefni í HÍ og það gekk bara ágætlega. Þetta var markaðsgreining á hentiréttum (nei, ekki fast food). Ég fékk að kynnast hressum strákum sem voru allir í svipaðri aðstöðu og ég: í námi með vinnu og aðeins eldri. Ég var reyndar yngstur sem var voða huggulegt (sorry Oliver og Tobbi).
Næst á dagsskrá er það svo "alvöru stefnumótun" og svo er það stjórnunarverkefni. Þetta er þroskandi. Ég var reyndar það heppinn að lenda með Tobba úr markaðsfræði verkefninu aftur í hóp í þessu stjórnunarverkefni, en við fengum líka einn nýliða með okkur líka. Sjáum hvort rætist úr honum.
Það er búið að ganga vel í nýju íbúðinni, en við erum ekki búnir að klára ýmislegt. Eins og t.d. að festa skápa, festa lista, innrétta svefnherbergið, lakka smá, setja upp skápa, loka dósum og rofum, setja upp veggljós og ganga frá geymslunni. Við stefnum á flest af þessu núna um helgina. Þeir sem hafa ekkert betra að gera mega endilega hafa samband ;)
Það eru allir að fara í frí núna (Torfi & Björk, Maggi í vinnunni, Ella) og mig dauðlangar að kíkja til London (á Árna, Baldvin og Jönu t.d.) í nóvember/desember (fer eftir hvenær lokapróf eru). Sjáum til hvort mér takist það. Annars er ég alltaf snemma í því að bóka sumarfríið mitt og ætla að reyna bóka það núna á næstunni. Mig langar einmitt að leigja mér cabin á Spáni í litlu þorpi sem heitir Torre dem Barra í Katalóníu. Ég er að reyna fá Róru, Gest og Mosa með mér og það er spennandi sjá hvort fólk hafi áhuga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

