Færsluflokkur: Kvikmyndir
RIFF
4.10.2008 | 15:29
Ég ákvað að vera mucho menningarlegur þessa vikuna og sækja RIFF kvikmyndahátiðina duglega. Byrjaði reyndar viku of seint og er bara búinn að ná tveimur myndum. Ætla reyndar að fara á eina í kvöld og vonandi aðra á morgun.
Mr.Big er fyrri myndin sem ég fór á. Róbert vinnufélagi minn var mjög heitur fyrir þeirri mynd, enda lofar lysingin mjög góðu. Þannig við skelltum okkur þrjú (Áslaug systir kom með). Myndin er Kanadísk og allt í góðu með það. Hún fjallar um ákveðna aðferð sem "Royal Canadian Mounted Police" notar þar úti, sem er kölluð "Mr.Big" og er notuð til að knýja fram játanir mögulegra glæpamann (þegar aðrar aðferðir duga ekki). Þessi aðferð er ólögleg í USA og UK, sem segir rosalega mikið um hana. Myndin sýnir og ræðir við fórnarlömb þessara aðferða. Leynilögreglumenn þykjast vera glæpamenn og reyna innleiða grunlausa grunaða inn í glæpahring sinn. Löggan þykist vera óprúttnir morðingjar og mafíósar og fá grunaða til að framkvæma fyrir sig einföld verkefni fyrir mikla peninga. Svo reynir hún að "bonda" við grunaða og fer að hella í þá áfanga og örvar þá til að ræða um mögulega glæpi svo þeir fari nú að játa. Allt er þetta tekið upp á vidjó. Grunaðir missa svo eitthvað út úr sér og eru sakfelldir með vidjóinu fyrir kviðdómi. Skíthræddir við mafíósana, fullir og vitlausir og segja það sem þeir halda að sé það sem mafíósarnir vilja heyra.
Myndin er vægast sagt mjög biased, þar sem hún er leikstýrð af Tiffany Burns, sem er sjónvarpsfréttakona í Kanada og er systir eins fórnarlambsins. Hún reynir að nota sína þekkingu úr bransanum til að búa til heimilidamynd og mér finnst hún algerlega klúðra þessu. Myndin reyndar nær að sýna fram á að aðferðin er siðlaus og ætti að vera ólögleg í Kanada. Af hverju? Í fyrsta lagi þá eru játanir almennt mjög óáræðanlegar og mikið er um "false confessions". Öðru lagi grunuðu glæpamennirnir eru skíthræddir. Þriðja lagi þeir eru drukknir. Þetta þýðir einfaldlega að það eru alltof háar líkur á því að saklaust fólk sé sakfellt með þessari aðferð. Takk Tiffany fyrir að láta mig sitja og horfa á hörmulega heimildamynd með lélegu hljóði, lélegri myndatöku, lélegri leikstjórn og hræðilegu handriti, bara til að komast að því hversu siðlaus lögreglan er í Kanda. Ég hefði getað lesið það í pínupons grein á reddit.com (og verið alveg sama þar sem ég bý ekki í Kanada).
Einkunn 4.0 / 10.0 mögulegum.
Seinni myndin sem ég fór á heitir á íslensku Ljónagryfjan eða Leonera á argentínsku. Þetta er ekki heimildamynd og fjallar um konu sem lendir í einhverjum átökum innan heimilis í byrjun myndar. Einn maður (kærastinn hennar) deyr en sambýlismaður þeirra lifir af. Konan fer í gæsluvarðhald fram að því að fara fyrir dómstól og kemst að því að hún er þunguð. Í Argentínu má hafa börn með sér í fangelsi fram að fjögurra ára aldri (það er spes). Að dæma í morðmáli í Argentínu tekur greinilega þrjú ár og fangelsin þar eru crap. Hún fær reyndar að vera í spes mömmu deild sem er víst lúxus hótel miðað við annað. Alla vega, eftir svona 2 tíma af myndinni þá stelur amman (mamma konunar) barninu (sem er þá þriggja ára) og það fer allt í háaloft.
Myndin er mjög langdregin og það hefði mátt klippa hana niður um heilan hálftíma. Boðskapurinn? Ég hef ekki hugmynd.. ef þú ert ung kona í ruglinu ekki búa með tveim karlmönnum? Allir verða samkynhneigðir í fangelsi? Börn í fangelsi eru bara hækjur? Þetta er svona mynd sem kveikir margar ómerkilegar spurningar og þú ert eiginlega verr staddur eftir myndina (ignorance is bliss). Hún er samt alveg áhugaverð mynd með góðum leikurum og það er betra að horfa á þetta en Bandarískt hland um táninga í gagnfræðiskóla.
Einkunn 6.0 / 10.0 mögulegum
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

