Færsluflokkur: Dægurmál
Viðbjóður
11.9.2008 | 20:05
Úff, það er sjaldan sem myndrænt efni hefur svona áhrif á mig. Ég opnaði þetta sketch rétt áður en ég fór í lunch með Mosa... við fórum ekki á MacSteikhús það hádegið (en svo fórum við á mega sveittan stað, förum ekki út í detail).
Annars sá ég hrikalega vonda mynd um daginn sem heitir Men behind the sun (skemmtilega ranglega titlað Man behind the sun) sem kemur frá Japan og er frá árinu 1988. Myndin gengur út á að sýna ýmsar pyntingar í japanskri herstöð í seinni heimstyrjöldinni. Ég venjulega mikið fyrir þetta genre (hryllingsmyndir) en þessi mynd var bara ómannlega vond.
Það er samt ótrúlegt hve mikið fólk sækir í viðbjóð, sérstaklega eftir YouTube byltinguna. Eitt það versta sem ég hef séð er langt myndband af mjög stórri margfætlu að éta litla sæta mús. Ég ætla ekki að linka það vídjó, en ég er viss um að margir kannist við það. Margfætlur eru reyndar eitt það viðbjóðslegasta sem ég veit um.. þannig ég er frekar biased.
Dægurmál | Breytt 15.9.2008 kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

