Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Samsung NC20 + Palm pre

Úff mig langar í þettta tvennt:

Fartölva sem er "nóg".

http://www.engadget.com/2009/01/29/samsung-nc20-sees-foreign-review-universal-appreciation/

12-21-08-samsung_nc20

Samsung NC20 12.1" tommu netbook, eða ódýr fartölva. Intel skilur víst ekki af hverju allir flykkjast í að kaupa netbooks.. Hverjir vilja ódýrar fartölvur?? Haha, stundum elska ég kaptalisman í Intel. En já þetta er 500-600 USD tölva, með eins kjarna örgjörva (hægur), 1GB minni (lítið) með 160GB harða disk (fínt) og þremur USB tengjum. Ekkert geisladrif, en það er hægt að nota minniskort. Þessi tölva er samt alveg feikinóg fyrir allt nema leiki og þunga vinnslu. En þeir sem þurfa bara netið, office og svona ættu að vera í góðum málum.

 

 

Svo er það síminn sem sjokkaði á CES2009

palm-pre-hr-sa

 http://www.engadget.com/2009/01/30/another-pre-hands-on-video-with-palms-vp-of-design/#continued

Palm Pre er touch sími frá Palm. Það var enginn að búast við neinu frá þeim, enda hafa þeir ekki beint verið þekktir fyrir mikla nýsköpun eða framúrskarandi hönnun. Þarna koma þeir hinsvegar með mjög framsækinn síma. Kíkið á vídjóið í linknum að ofan! Síminn er með slide out qwerty lyklaborð, mjög flott WebOS stýrikerfi. Eina sem böggar mig er að það er ekki minniskorta slot, en hann er með innbyggt 8GB minni og 3,5mm jack fyrir headphone. Og já, hann notar conductive charging, AKA þráðlaust rafmagn! :D það er awesome. Sjá meira hér. http://www.palminfocenter.com/news/9668/palm-announces-the-palm-pre-smartphone/


Dell Inspiron Mini

Dell hefur ákveðið að skella sér út á nýjan markað: netbooks markaðinn.

Dell Mini Inspiron 2

Netbooks eru low cost + ultra portable fartölvur. Mosi kallar þær SSD tölvur, sem er mjög skemmtilegt rangnefni.. jafnvel þó þær innihaldi solid state diska stundum, þá það ekki aðalmálið. Það eru til tvær týpur af svona litlum fartölvum: ódýrar (eee pc, acer aspire one, inspiron mini) og dýrar (macbook air, thinkpad x300). Þær ódýrari eru kallaðar netbooks og þær dýrari ultra portable laptops. Solid state diskar þurfa minna rafmagn henta því netbooks mjög vel. Það er hinsvegar hægt að fá svona vélar með venjulegum fartölvu diskum.

Ég verð að viðurkenna að þetta concept heillar mig talsvert. Fyrir 45þús kall í USA þá færðu netta litla fartölvu sem er fullkomin til að glósa á, svara póstum, varpa á skjávarpa og ferðast með. Eina sem hræðir mig er smæð skjásins og upplausn han (1024x600)

Ég er ekki viss um að svona lítill skjár sé nóg fyrir mig.. en það heillar mig talsvert að vera með 1kg þunga fartölvu með 3,5 klst rafhlöðu! Á tölvunni er ethernet tengi, 3x usb og SD memory slot. Tölvan býður bara upp á SSD diska (4, 8 og 16GB) sem eru enn mjög litlir miðað við venjulega diska en þær hafa ýmsa kosti (minna rafmagn, fyrr í gang og fleira skemmtilegt). Netbooks markaðurinn ætti samt að örva framleiðslu SSD og hefur Intel ákveðið að koma inn á þann markað, sem mun án efa lækka verð og stækka diskana á næstunni.

Ly 8660 dellmini9 klaborðið á Inspiron Mini er áhugavert. Það er frekar stórt og þægilegt í notkun. En til þess að hafa það svona stórt var F-takka röðin alveg tekin burt en hægt er að nota þá með Function takkanum sem seinni lyklar annarra lykla. Hinsvegar vantar F11-12! Skrítið, en sniðugt approach. Tölvan er að sjálfssögðu með þráðlaust netkort. Þessi tölva notar Intel Atom örgjörvan, sem er sérstaklega hannaður fyrir netbooks tölvur (low voltage + small form factor).

Netbooks eru sniðugar og ég er mjög hrifinn af verðinu. Ég held svona tölva myndi henta mér ágætlega í námi en ég sjálfur myndi alltaf eiga borðtölvu eða þá alla vega stærri skjá heima hjá mér til að vega á móti svona tölvu. Ég veit ekki hvernig hún myndi fúnkera í vinnu, án þess að nota borðtölvur líka. Ég held að svona tölva myndi skíta á sig þegar ég væri að svara póstum (mörgum, teikna eitthvað í visio, opna CRM og fleiri heimasíður. Hún gæti samt verið góð í að taka fundargerðir og kannski svara einhverjum póstum.


NOVA

Mikið rosalega er ég ánægður með inngöngumarkaðsherferð NOVA :)

Þetta hlýtur að vera ein lélegasta herferð sem fjarskiptafyrirtæki á Íslandi hefur haldið úti og "Stærsti skemmtistaður í heimi" er slæmt slogon. Mamma mín hélt að þetta væri skemmtistaður og ég hló mikið að því og gerði ráð fyrir því að fólk yfir fimmtugt væri bara að ruglast svona.. en nei nei, litli bróðir hans Unnsteins ætlaði nú að skella sér á tjúttið á NOVA. Nafnið er meira segja skemmtilega líkt "NASA" haha.

Heimasíðan er frekar slöpp og þegar henni var launchað þá voru dauðir linkar, engin verðskrá og ekkert efni. Svo nokkrum dögum seinna var búið að laga fatal villurnar en hún var ennþá jafngagnslaus. Endilega prófið vefverslunina.

Að velja þessa aðferð og velja markhópinn "fólk sem djammar og finnst DJ Nova fyndinn" er alveg stórfurðulegt. Ég hefði nú reynt að byggja upp smá traust á NOVA og 3G tækninni með því að laða að þroskaða neytendur. Jújú, það er peningur í djömmurum og krökkum, en ætlar fólk að reka fyrirtæki á þannig markhópi? Það verður gaman að sjá hvernig NOVA vinnur sig út úr þessu skemmtistaðadæmi. Mig grunar að það sé mögulega frekar erfiður bransi þar sem bæði Vodafone og Síminn eru frekar skemmtileg fyrirtæki..

Og já, MSN í GSM síma hefur verið til í 5 ár :) Virkar voða vel á HTC símanum mínum, en hversu mikið retard þarftu að vera til að stunda MSN á símanum þínum? Og hver þarf myndsímtöl? Ef myndsímtöl væru sniðug þá væru allir sem stunda MSN í tölvunum sínum löngu komnir með webcam. Þeir fáu sem eiga webcam í dag eiga ættinga erlendis eða stunda "voyerism". Hmm, ok, þetta gæti verið fyrir seinni markhópinn.

Ég veit að ég er svoldið biased, en ég hef nú verið að tjatta við fólk sem hefur vit á þessum hlutum og þetta er mjög kjánaleg herferð að margra mati. Ég hef alla vega ekki heyrt einum einasta segja "djöfull maður, ég verð að fá mér farsímaáskrift hjá Stærsta Skemmtistað í heimi!"...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband