Færsluflokkur: Tónlist
Allir á Airwaves!
9.9.2008 | 23:26
Ég vona að sem flestir í kringum mig fari á Airwaves í ár, því lineuppið lofar virkilega góðu. Ekki bara er fullt af góðum íslenskum böndum (eins og Gus Gus, motion boys, Hjaltalín, Steed lord, UMTS,...) heldur er mjög flott útlenskt lineup.
Ég er hvað spenntastur fyrir Crystal Castles sem eru "nýliðar" (byrja upp úr 2003). Þetta er snilldar dúet sem spilar frekar hart electro, eða indie electro og notar ýmis skemmtileg hljóð sem minna mikið á tölvuleiki. Platan þeirra (Crystal Castles) er öll góð! Ég mæli sérstaklega með Alice Practice og Loving and Caring. Þetta er uppáhalds electroið mitt í ár.
Familijen lofar auðvitað góðu. Mér fannst reyndar platan þeirra ekki eins solid og ég vonaðist til, en það vilja margir meina að hún sé nú samt "meistaraverk" (hjalti bróðir). Það ætti samt að vera spennó að sjá þá live!
P'NAU er ástralskt band sem ég er algerlega búinn að falla fyrir. Diskurinn þeirra brilliant (samnefndur)! Fullt af lögum þar sem ég digga. Þetta er electro rock og minnir mig frekar mikið á Justice (þeir eru einmitt með svona kórsöng eins og í D.A.N.C.E í einu laginu sínu). Uppáhaldslagið mitt er líklega Lover. Mæli þeim í botn! :D
Simian mobile disco er líka voða fínt. Get ekki sagt að það sé innihaldslaust, en þetta er alla vega mjög örvandi tónlist (fínt í ræktina og visio vinnu). Gæða electro mjamm jamm. Mæli með laginu Hustler laginu þeirra, það er töff.
Yelle, eins og áður hefur komið fram, eru æði! Ég sá þau á Sónar og fílaði þau í botn. Þau voru fyrsta giggið það kvöld og þau fengu mig til að dansa mig sveittann. Þau spila spila krúttlega skemmtilegt electro með ljúfri franski söngkonu. Ég mæli með lögunum Cause des garcons og 85a.
Svo tók ég mig nú til og athugaði fleiri bönd sem voru þokkalega: Young knives, Robots in Disguise, These new puritans og Junior boys. Ágætis uppfylliefni, en annars ganga nú slatti af íslenskum böndum fyrir.
Sjáumst á airwaves!
Tónlist | Breytt 15.9.2008 kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sónar 2008
7.7.2008 | 11:19
Ég fór á tónlistarhátíðina Sónar (2008) ásamt vini mínum Mosa (og vini hans Ómari), sem er haldin í Barcelona.
Maður er greinilega orðinn vanur góðu og jafnvel pjattaður eftir tvær Roskilde tónlistarhátíðir.. það vantaði ýmislegt upp á skipulag á Sónar. Það var 1 hraðbanki, sem var bilaður. Það þurfti fyrst að kaupa "tickets" fyrir áfengi í langri röð og svo fara aðrar raðir til að fá áfengi. Það var bara seldur einn bjór og það var official sponsorinn, Budweiser (USA), sem er auðvitað ódrekkanlegur! Þannig maður drakk nokkuð lítið.
Það voru fjórir venues, og þeir voru allir á sama stað, allir undir sama þaki. Þetta var sumsé svona stór expo höll í úthverfi Barcelona. Það var náttla mjög gott, þá rignir alveg pottþétt ekkert á mann (Roskilde '07 anyone?). Það var mjög þægilegt að komast á milli tónleika og það var alls enginn troðningur á þeim sjálfum.
En já, við vorum komnir til að hlusta á tónlist. Ég ætlaði að checka á Roisin Murphy, Yelle, Neon Neon, Hercules and Love Affair og Justice. Ég náði þeim öllum (og fleirum böndum), en var vægast sagt fyrir vonbrigðum með Roisin Murphy og Hercules..
Roisin notaði ekki electro hljóðin sín, heldur lét spila allt á alvöru hljóðfæri, sem kom hrikalega út :( Hún var hinsvegar mjög töff á sviði. Skipti um föt með því að láta sig detta flata á gólfið, og svo komu bakraddirnar með nýtt dress. Cheap, fast and effective :) Hún er auðvitað með flott rödd og maður fékk alveg að heyra það þarna. Ég missti af seinni hálftímanum hjá Justice útaf henni, sem var nokkuð slæmt, þar sem Justice voru klikkaðir live.
Hercules voru 20 mín of sein á svið og ég gat ekki séð Anthony. Það kom engin Anthony. Vocalsið hans var sungið af tveim stelpum, sem var alls ekki það sama. Við fórum snemma það kvöld eftir að hafa heyrt Blind sungið af þessum tuskum :(
Yelle var skemmtilegasta sem ég sá á Sónar. Söngkonan er mjög skemmtileg á sviði og var í mega flottu outfit-i. Við dönsuðum allan tímann :D
Neon Neon var mjög skemmtilegt, líklega í þriðja sæti á eftir Justice. Það var mjög fyndið að sjá Mar Har Superstar perform-a, ég mæli með því! Mjög skemmtilegt stuff og gott performance. Þau tóku alla gestasöngvarana með sér!
Sónar er skemmtileg hátíð, en það vantar mikið upp á skipulag. Ég mæli með því að kíkja, en þetta er mikið minni hátíð en Roskilde, Glastonbury and so on. Nota bene, ég fór ekki á neina events sem voru "by day". Það eru eiginlega bara dj set.
P.S.: Vodafone var sponsor númer tvö, sem okkur fannst mjög skondið. Þeir buðu upp á klessubíla á miðju tónleikasvæðinu :)
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tónlist: Stainless Steel 2008
6.7.2008 | 14:21
Stainless Steel er plata frá Neon Neon, sem kom út árið 2008, og er þeirra fyrsta albúm. Neon Neon kom saman fyrst árið 2005 og er samvinna milli Gruff Rhys (Super furry animals) og Boom Bip (Hip hop-ari). Genre-ið þeirra er líklega "indie electro" og minnir mjög svo á 80s tónlist.
Diskurinn er mjög léttur og skemmtilegur og heillaði mig strax við fyrstu hlustun, enda er ég alltaf svoldið veikur fyrir 80s tónlist. Diskurinn er reyndar alls ekki bara 80s, það eru þarna nokkur lög sem er hiphop lög. Ég var nokkuð skeptískur á þau lög fyrst, en þegar ég sá bandið live á Sónar 2008, þá má segja að þessi lög hafi lifnað fyrir mér (þökk sé Mar Har Superstar).
Það eru 12 lög á disknum sem eru langflest hlustanleg, einu lögin sem ég sleppi eru Neon theme og Sweat shop (sem er mjög leiðilegt lag) . Ég gef venjulega lögum rating inn í mp3 forritinu mínu og þau lög sem skoruðu hæst voru að ná fjórum stjörnum af fimm. Það myndu vera I told her on Alderaan, Trick for treat, Belfast, I Lust U og Michael Douglas. Uppáhaldslagið mitt er I told her on Alderaan, gæti verið Star Wars nafnið.. :) Trick for treat er eitt af hip hop lögunum, sem ég fílað ekki fyrr en ég sá Mar Har Superstar. Hann er ótrúlega ómyndarlegur, lítill, tiltölulega sköllóttur með síttaðaftan og feitur hvítur maður (gæti verið frændi Mosa..?). Ég bjóst við svörtum rappara (af laginu að dæma), en svo kom þessi maður á sviðið. Hann var fullur af orku og sjúklega fyndinn gaur. Checkið á þessu!
Eitt lag á sviði fékk mig til að fíla þennan mann, þrátt fyrir núll sex appeal :)
Ég mæli hiklaust með Neon Neon og þeirra fyrstu plötu. Þetta er ekki hart electro, alls ekki. Þetta er melódískt og skemmtilegt indie electro með 80s fíling. Platan er full af tilvitnunum til 80s tímabilsins, sem er t.d. augljóst í Michael Douglas. Besta lagið er I Lust U sem er sungið af gestasöngkonu, sem er Cate Le Bon, og ég mæli með að fólk checki á því. Lögin er fullt af skemmtilegum hljóðum, vægum hip hop beatum og mjúkum bassa. Neon Neon var líka solid á sviði, enda velþjálfað tónlistarfólk. Þriðja besta atriðið sem ég sá alla vega :)
Ef ég notast við rating skalann minn, úr mp3 forritinu mínu, þá gef ég þessari plötu í held þrjár og hálfa stjörnur af fimm.
Tónlist | Breytt 7.7.2008 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

