Færsluflokkur: Bloggar
Afmæli
14.5.2009 | 18:20
Fólk sem hefur sérstakan áhuga á því að gefa mér afmælisgjafir, getur hér nálgast smá óskalista. Það er þarf alls ekki að gefa mér gjafir hinsvegar! Bara ef ykkur langar til þess ;)
Mig vantar:
Púlsmæli (ekki gps).
Hjólahjálm.
Íþróttaföt.
Göngubuxur.
Einkaþjálfun (fyrir offitusjúklinga.. nei djók!)
Ég hef áhuga á:
Bókum/comics úr Nexus (Neil Gaiman, Alan Morrison, Terry Pratchett, Terry Goodkind, Frank Herbert,...).
Rauðvín.
Cava eða Kampavín.
Fullt af íslenskri tónlist sem er erfitt að nálgast (nýrri tónlist, ekki Bubba og Sálinni!).
Bindum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Áróður
11.2.2009 | 14:31
http://www.amx.is/pistlar/4025/
Það kemur mér rosalega á óvart hversu úr takt Sjálfsstæðisflokkurinn og hans lackeys eru við samfélagið. Það kemur mér einnig á óvart (þó minna) hversu frjálslega þeir fara með staðreyndir í kringum stjórnarslitin og hversu hart þeir nota þær frjálslegu staðreyndir til að gagnrýna allt nema sjálfan sig.
Þessi pistill er gott dæmi um slappan áróður sem fer frjálslega með staðreyndir og fer alveg fram hjá tíðaranda Íslendinga.
Sjálfsstæðisflokkurinn ber mestan hluta ábyrgðar í gjaldþroti Íslands. Auðvitað má persónugera gjaldþrot heillar þjóðar, enda eru það einstaklingar sem bera ábyrgðir (ekki lög og stofnanir). Þar ber einn maður þunga og mikla ábyrgð. En sá maður ætlar að reyna spila sig út úr því með fólskulegum brögðum og gagnrýni á forsætisráðherra Íslands.. hann nær ekki að blekkja mig.
Ég er ekki tengdur neinum flokki né stefnum, en sé að það frekar augljóst að FMA og SÍ misstu marga bolta. Í þeim stofnunum bera einstaklingar ábyrgð. Óþarfi er að rökræða það eitthvað..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blindur, heyrnalaus og...?
9.2.2009 | 10:34
"Það gleður mig að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við stöf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga."
Einmitt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bíóvika
1.2.2009 | 22:29
Jæja, ég var voða duglegur að fara í bíó í vikunni :)
Ég fór á tvær myndir á frönsku kvikmyndahátíðinni: C.R.A.Z.Y og Refurinn og Barnið.
C.R.A.Z.Y fjallar um strák í Canada (Quebec) og hvernig hann kemur út úr skápnum. Ég var mjög hrifinn af þessari mynd og mæli eindregið með henni. Ekki skemmir fyrir að aðalleikarinn er frekar myndarlegur. Sagan er góð, leikarar mjög góðir (sérstaklega "pabbinn") og tónlistin flott. 8 af 10 í einkunn.
Refurinn og Barnið (Le Rendard et l'enfant) er mynd frá leikstjóranum sem gerði March of the penguins (La Marche de l'empereur). Myndin fjallar um samband 10 ára stúlku og refs. Stíll sögunnar og leikstjórans minnti mig rosalega mikið á Spirited Away eftir Miyazaki. Það vantaði samt eitthvað... og aðalleikkonan heillaði mig ekki. Samt fínasta mynd. 7 af 10 í einkunn.
Svo fór ég á Valkyrie með góðvini allra: Tom Cruise. Hann át legkökur í gríð og erg, og hoppaði um öskrandi "I really love her". Neiii djók. Hann kom þessu bara mjög frá sér. Það er alveg þvílíkt leikaralið sem leikur í þessari mynd, en það er samt frekar kjánalegt að sjá alla þessa flottu bresku leikara leika nasista.. Alla vega flott mynd, flottir leikarar, leiðileg saga. Maður veit auðvitað að þeim tekst ekki að drepa Mr.Hiller. Og já, mic boomið sást í fullt af atriðum, mjög spes. Ég gef þessari mynd 7 af 10 mögulegum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rafbílavæðing
8.12.2008 | 09:38
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/12/04/hawaii_rafbilavaedist/
Nú þegar Range Rover æðið er hætt, ættum við ekki geta tekið upp svipaða stefnu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blóraböggull
4.12.2008 | 10:23
Greyið Davíð segist vera blóraböggull og kvartar yfir spilltum fjölmiðlum á Íslandi. Fer næstum svo langt að kenna þeim um þetta allt.. Spes, ég hélt að hann væri með eigin fréttaritara og hefði því góðan aðgang að áróðursvél Mogganns? Ætli hann hafi gefist upp á því (Agnesi) og sé bara að tala við Skandinavíska fréttamiðla núna?
""Ef við hefðum haft frjálsa fjölmiðla, sem hefðu getað og viljað veita hinum raunverulegu valdamönnum aðhald, þá hefðum við ekki leiðst út í ofviðrið sem nú ríkir,“ segir Davíð og tekur fram að hann skilji vel að gremja fólks beinist að sér þar sem hann sé tákngervingur valdakerfisins í stöðu sinni sem seðlabankastjóri." Þarna talar hann líka um að hann hefði varað alla við og samviskan bara hrein.. skrítið þar sem hann hafði tækin til að bregðast við sínum eigin viðvörunum.
En já, hann er ekki blóraböggull greyið. Árni Mathiesen er það hinsvegar í þessari grein hér: . Vita ekki flestir hérlendis að Árni getur nú varla fengið þennan "heiður"? Gaman að sjá samt að þarna kjósa flestir Alan Greenspan, fyrrum "seðlabankastjóra U.S.". Maðurinn sem bjó til reglurnar.. minnir á einhvern? :) Hann er alla vega nógu mikill maður til að viðurkenna mistök sín.
Jæja, Davíð Oddson hótar að koma aftur... þetta lýðveldi er byrjað að minna mig á Zimbabwe. Ætli Davíð sæki sína fjármálaráðgjöf til Mugabe?
![]()
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Klikkuð mix
27.9.2008 | 12:18
Jæja, ég er búinn að vera duglegur að rækta hypem.com sl. 2 vikur og er búinn að finna fullt af góðum remixum. Ég verð auðvitað að deila því með ykkur, því ég er með svo rosalega góðan tónlistarsmekk og yfirburðarhæfileika í því að gagnrýna.
Skemmtilegasta mixið er án efa Wild Strawberries með PNAU mixað af Sam La More. Þetta er blússandi electro. Upprunalega útgáfan, en ekki eins villt! Hljóðin er mjög skemmtileg og hörð, sem kemur manni fljótt í stuð. Söngurinn er afskræmdur á mjög sexy hátt. Flott lag, en kannski aðeins of hart fyrir hjartveika.
Divine með Sebastien Tellier fékk verðskuldaða athygli á Eurovision og er eiginlega fyrsta "góða" lagið í Eurovision. Ég datt inn á rosalega mix á því lagi frá Danger, eiginlega eitt flottasta remix af lagi sem ég hef heyrt. Mér finnst það eiginlega bara betra en original :D En já, það er í sama electro fíling og villtu jarðaberin að ofan.
Tobbi félagi minn benti mér á Lykke Li þannig ég fann auðvitað brilliant mix frá Familijen á laginu Breaking it up. Lykke Li er tveggja manna band frá Skáni sem eru með svona voða krúttlega indie tónlist. Bandið snýst auðvitað um stelpuna sem syngur, en hún heitir Li Lykke. Lykke Li lofar mjög góðu og ég mæli með Little bit frá þeim/henni.
Ég fann Justice remix af Klaxons lagi sem heitir As Above, So Below, sem ég bjóst nú ekki við mig af.. en ég er svo að fíla taktinn og hljóðin í þessu mixi! Minnir mig á Bevery Hils Cop :D
Síðasta mixið er frá sama bandi og það fyrsta: PNAU. Ég er mjög hrifinn af því bandi og er sérstaklega ánægður með komu þeirra á Airwaves. Ég tek líklega plötudóm með þeim bráðlega. En mixið er af lagi sem heitir Baby, sem er mjög krúttlegt og skemmtilegt lag. Það minnir mig óneitanlega á D.A.N.C.E með Justice (söngurinn útskýrir það). Lagið er mixað af Breakbot og er nú ekki betra en upprunalega útgáfan, en þó nokkuð góð!
Jæja, þetta er allt á hypem.com ef þið hafið áhuga. Happy hunting!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Öllu gríni fylgir einhver alvara
23.9.2008 | 20:16
Baggalútur geta verið rosalega fyndnir stundum.
Þarna hinsvegar fylgir smá alvara ;)
Síðasti punkturinn er mjög góður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Unnsteinn farinn
3.9.2008 | 20:57
Unnsteinn er farinn til Hollands og ég er einn eftir í Álfheimum. Ekki hefur gengið að finna góðan leigjanda, en ég hef ekki enn gefist upp. Ef ykkur vantar að leigja herbergi, verið í bandi. Ef þið eruð á leiðinni í sambandsslit og vantar herbergi, verið í bandi! :D
Ég er byrjaður í skólanum aftur og er í mjög skemmtilegri áfangablöndu:
- Tölvukerfi og markaðsmál - Þriðja árs tölvunarfræðiáfangi
- Lögfræði A- Annars eða þriðja árs viðskiptafræðiáfangi
- Rekstrarhagfræði I - Fyrsta árs viðskiptafræðiáfangi.
Mér líst bara ágætlega á þessa áfanga og stefni á að rúlla þeim öllum upp! Mér finnst þetta líka ágætisblanda. Það eru 400 nemendur í rekstrarhagfræði, 350 í lögfræði og 5 í tölvukerfi og markaðsmálum! Það er lúxus af fá loksins að sitja svona fámennan tíma og hafa gott aðgengi að kennaranum, ágætis mótvægi miðað við hina áfangana.
Ég er í átaki í ræktinni og ætla mér að ná þessum aukakílóum af mér fyrir jólin. Stefni á 65kg! Annars var ég að spá í því að kveðja Laugar á næstunni og fara yfir í Háskólaræktina. Það er verðsamanburður sem kemur ótrúlega vel út fyrir Háskólann, 6.500 kr vs ~50.000 kr. per ár. Það er hinsvegar eilífðar uppsagnarfrestur (6 mán) þannig þetta er ekki að fara gerast á eftir, en þarna myndi ég græða slatta per ár. Það er jú næstum því kannski ef ekki kreppa!?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gay pride 2008
15.8.2008 | 12:29
Já, ég er ekki dauður, bara voða busy.
Ég skemmti mér rosalega vel síðustu helgi, enda helgin "okkar". Gay pride gangan í ár var sú flottasta sem ég hef séð og ég skemmti mér rosalega vel! Ekki skemmdi fyrir að hann Árni Grétar hafi skellt sér í drag ásamt Bjartmari. Shit hvað það var fyndið. Þeir klæddu sig upp sem van gayfin Amy Winehouse kellingar. Checkið bara á myndunum
Annars er bara allt gott að frétta, nema að Unnsteinn flytur út 1.sept og mig vantar enn leigjanda. Ég hvet þá sem hafa áhuga á að leigj hjá mér að hafa samband! :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

