Afmæli

Fólk sem hefur sérstakan áhuga á því að gefa mér afmælisgjafir, getur hér nálgast smá óskalista. Það er þarf alls ekki að gefa mér gjafir hinsvegar! Bara ef ykkur langar til þess ;)

Mig vantar:
Púlsmæli (ekki gps).
Hjólahjálm.
Íþróttaföt.
Göngubuxur.
Einkaþjálfun (fyrir offitusjúklinga.. nei djók!)

Ég hef áhuga á:
Bókum/comics úr Nexus (Neil Gaiman, Alan Morrison, Terry Pratchett, Terry Goodkind, Frank Herbert,...).
Rauðvín.
Cava eða Kampavín.
Fullt af íslenskri tónlist sem er erfitt að nálgast (nýrri tónlist, ekki Bubba og Sálinni!).
Bindum.


Áróður

http://www.amx.is/pistlar/4025/

Það kemur mér rosalega á óvart hversu úr takt Sjálfsstæðisflokkurinn og hans lackeys eru við samfélagið. Það kemur mér einnig á óvart (þó minna) hversu frjálslega þeir fara með staðreyndir í kringum stjórnarslitin og hversu hart þeir nota þær frjálslegu staðreyndir til að gagnrýna allt nema sjálfan sig.

Þessi pistill er gott dæmi um slappan áróður sem fer frjálslega með staðreyndir og fer alveg fram hjá tíðaranda Íslendinga.

Sjálfsstæðisflokkurinn ber mestan hluta ábyrgðar í gjaldþroti Íslands. Auðvitað má persónugera gjaldþrot heillar þjóðar, enda eru það einstaklingar sem bera ábyrgðir (ekki lög og stofnanir). Þar ber einn maður þunga og mikla ábyrgð. En sá maður ætlar að reyna spila sig út úr því með fólskulegum brögðum og gagnrýni á forsætisráðherra Íslands.. hann nær ekki að blekkja mig.

Ég er ekki tengdur neinum flokki né stefnum, en sé að það frekar augljóst að FMA og SÍ misstu marga bolta. Í þeim stofnunum bera einstaklingar ábyrgð. Óþarfi er að rökræða það eitthvað..


Blindur, heyrnalaus og...?

"Það gleður mig að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við stöf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga."

 Einmitt.


Bíóvika

Jæja, ég var voða duglegur að fara í bíó í vikunni :)

Ég fór á tvær myndir á frönsku kvikmyndahátíðinni: C.R.A.Z.Y og Refurinn og Barnið

C.R.A.Z.Y fjallar um strák í Canada (Quebec) og hvernig hann kemur út úr skápnum. Ég var mjög hrifinn af þessari mynd og mæli eindregið með henni. Ekki skemmir fyrir að aðalleikarinn er frekar myndarlegur. Sagan er góð, leikarar mjög góðir (sérstaklega "pabbinn") og tónlistin flott. 8 af 10 í einkunn.

Refurinn og Barnið (Le Rendard et l'enfant) er mynd frá leikstjóranum sem gerði March of the penguins (La Marche de l'empereur). Myndin fjallar um samband 10 ára stúlku og refs. Stíll sögunnar og leikstjórans minnti mig rosalega mikið á Spirited Away eftir Miyazaki. Það vantaði samt eitthvað... og aðalleikkonan heillaði mig ekki. Samt fínasta mynd. 7 af 10 í einkunn.

Svo fór ég á Valkyrie með góðvini allra: Tom Cruise. Hann át legkökur í gríð og erg, og hoppaði um öskrandi "I really love her". Neiii djók. Hann kom þessu bara mjög frá sér. Það er alveg þvílíkt leikaralið sem leikur í þessari mynd, en það er samt frekar kjánalegt að sjá alla þessa flottu bresku leikara leika nasista.. Alla vega flott mynd, flottir leikarar, leiðileg saga. Maður veit auðvitað að þeim tekst ekki að drepa Mr.Hiller. Og já, mic boomið sást í fullt af atriðum, mjög spes. Ég gef þessari mynd 7 af 10 mögulegum.


Samsung NC20 + Palm pre

Úff mig langar í þettta tvennt:

Fartölva sem er "nóg".

http://www.engadget.com/2009/01/29/samsung-nc20-sees-foreign-review-universal-appreciation/

12-21-08-samsung_nc20

Samsung NC20 12.1" tommu netbook, eða ódýr fartölva. Intel skilur víst ekki af hverju allir flykkjast í að kaupa netbooks.. Hverjir vilja ódýrar fartölvur?? Haha, stundum elska ég kaptalisman í Intel. En já þetta er 500-600 USD tölva, með eins kjarna örgjörva (hægur), 1GB minni (lítið) með 160GB harða disk (fínt) og þremur USB tengjum. Ekkert geisladrif, en það er hægt að nota minniskort. Þessi tölva er samt alveg feikinóg fyrir allt nema leiki og þunga vinnslu. En þeir sem þurfa bara netið, office og svona ættu að vera í góðum málum.

 

 

Svo er það síminn sem sjokkaði á CES2009

palm-pre-hr-sa

 http://www.engadget.com/2009/01/30/another-pre-hands-on-video-with-palms-vp-of-design/#continued

Palm Pre er touch sími frá Palm. Það var enginn að búast við neinu frá þeim, enda hafa þeir ekki beint verið þekktir fyrir mikla nýsköpun eða framúrskarandi hönnun. Þarna koma þeir hinsvegar með mjög framsækinn síma. Kíkið á vídjóið í linknum að ofan! Síminn er með slide out qwerty lyklaborð, mjög flott WebOS stýrikerfi. Eina sem böggar mig er að það er ekki minniskorta slot, en hann er með innbyggt 8GB minni og 3,5mm jack fyrir headphone. Og já, hann notar conductive charging, AKA þráðlaust rafmagn! :D það er awesome. Sjá meira hér. http://www.palminfocenter.com/news/9668/palm-announces-the-palm-pre-smartphone/


Rafbílavæðing

Djö, Ameríkanar eru fyrri til og ætla að rafbílavæða Hawai.
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/12/04/hawaii_rafbilavaedist/
Nú þegar Range Rover æðið er hætt, ættum við ekki geta tekið upp svipaða stefnu?

Blóraböggull

Greyið Davíð segist vera blóraböggull og kvartar yfir spilltum fjölmiðlum á Íslandi. Fer næstum svo langt að kenna þeim um þetta allt.. Spes, ég hélt að hann væri með eigin fréttaritara og hefði því góðan aðgang að áróðursvél Mogganns? Ætli hann hafi gefist upp á því (Agnesi) og sé bara að tala við Skandinavíska fréttamiðla núna?

""Ef við hefðum haft frjálsa fjölmiðla, sem hefðu getað og viljað veita hinum raunverulegu valdamönnum aðhald, þá hefðum við ekki leiðst út í ofviðrið sem nú ríkir,“ segir Davíð og tekur fram að hann skilji vel að gremja fólks beinist að sér þar sem hann sé tákngervingur valdakerfisins í stöðu sinni sem seðlabankastjóri." Þarna talar hann líka um að hann hefði varað alla við og samviskan bara hrein.. skrítið þar sem hann hafði tækin til að bregðast við sínum eigin viðvörunum.

En já, hann er ekki blóraböggull greyið. Árni Mathiesen er það hinsvegar í þessari grein hér: . Vita ekki flestir hérlendis að Árni getur nú varla fengið þennan "heiður"? Gaman að sjá samt að þarna kjósa flestir Alan Greenspan, fyrrum "seðlabankastjóra U.S.". Maðurinn sem bjó til reglurnar.. minnir á einhvern? :) Hann er alla vega nógu mikill maður til að viðurkenna mistök sín.

Jæja, Davíð Oddson hótar að koma aftur... þetta lýðveldi er byrjað að minna mig á Zimbabwe. Ætli Davíð sæki sína fjármálaráðgjöf til Mugabe?

Mugabe, vinur Davíðs á raunartímum.


RIFF

Ég ákvað að vera mucho menningarlegur þessa vikuna og sækja RIFF kvikmyndahátiðina duglega. Byrjaði reyndar viku of seint og er bara búinn að ná tveimur myndum. Ætla reyndar að fara á eina í kvöld og vonandi aðra á morgun.

Mr.Big er fyrri myndin sem ég fór á. Róbert vinnufélagi minn var mjög heitur fyrir þeirri mynd, enda lofar lysingin mjög góðu. Þannig við skelltum okkur þrjú (Áslaug systir kom með). Myndin er Kanadísk og allt í góðu með það. Hún fjallar um ákveðna aðferð sem "Royal Canadian Mounted Police" notar þar úti, sem er kölluð "Mr.Big" og er notuð til að knýja fram játanir mögulegra glæpamann (þegar aðrar aðferðir duga ekki). Þessi aðferð er ólögleg í USA og UK, sem segir rosalega mikið um hana. Myndin sýnir og ræðir við fórnarlömb þessara aðferða. Leynilögreglumenn þykjast vera glæpamenn og reyna innleiða grunlausa grunaða inn í glæpahring sinn. Löggan þykist vera óprúttnir morðingjar og mafíósar og fá grunaða til að framkvæma fyrir sig einföld verkefni fyrir mikla peninga. Svo reynir hún að "bonda" við grunaða og fer að hella í þá áfanga og örvar þá til að ræða um mögulega glæpi svo þeir fari nú að játa. Allt er þetta tekið upp á vidjó. Grunaðir missa svo eitthvað út úr sér og eru sakfelldir með vidjóinu fyrir kviðdómi. Skíthræddir við mafíósana, fullir og vitlausir og segja það sem þeir halda að sé það sem mafíósarnir vilja heyra.

Myndin er vægast sagt mjög biased, þar sem hún er leikstýrð af Tiffany Burns, sem er sjónvarpsfréttakona í Kanada og er systir eins fórnarlambsins. Hún reynir að nota sína þekkingu úr bransanum til að búa til heimilidamynd og mér finnst hún algerlega klúðra þessu. Myndin reyndar nær að sýna fram á að aðferðin er siðlaus og ætti að vera ólögleg í Kanada. Af hverju? Í fyrsta lagi þá eru játanir almennt mjög óáræðanlegar og mikið er um "false confessions". Öðru lagi grunuðu glæpamennirnir eru skíthræddir. Þriðja lagi þeir eru drukknir. Þetta þýðir einfaldlega að það eru alltof háar líkur á því að saklaust fólk sé sakfellt með þessari aðferð. Takk Tiffany fyrir að láta mig sitja og horfa á hörmulega heimildamynd með lélegu hljóði, lélegri myndatöku, lélegri leikstjórn og hræðilegu handriti, bara til að komast að því hversu siðlaus lögreglan er í Kanda. Ég hefði getað lesið það í pínupons grein á reddit.com (og verið alveg sama þar sem ég bý ekki í Kanada).

Einkunn 4.0 / 10.0 mögulegum.

Seinni myndin sem ég fór á heitir á íslensku Ljónagryfjan eða Leonera á argentínsku. Þetta er ekki heimildamynd og fjallar um konu sem lendir í einhverjum átökum innan heimilis í byrjun myndar. Einn maður (kærastinn hennar) deyr en sambýlismaður þeirra lifir af. Konan fer í gæsluvarðhald fram að því að fara fyrir dómstól og kemst að því að hún er þunguð. Í Argentínu má hafa börn með sér í fangelsi fram að fjögurra ára aldri (það er spes). Að dæma í morðmáli í Argentínu tekur greinilega þrjú ár og fangelsin þar eru crap. Hún fær reyndar að vera í spes mömmu deild sem er víst lúxus hótel miðað við annað. Alla vega, eftir svona 2 tíma af myndinni þá stelur amman (mamma konunar) barninu (sem er þá þriggja ára) og það fer allt í háaloft.

Myndin er mjög langdregin og það hefði mátt klippa hana niður um heilan hálftíma. Boðskapurinn? Ég hef ekki hugmynd.. ef þú ert ung kona í ruglinu ekki búa með tveim karlmönnum? Allir verða samkynhneigðir í fangelsi? Börn í fangelsi eru bara hækjur? Þetta er svona mynd sem kveikir margar ómerkilegar spurningar og þú ert eiginlega verr staddur eftir myndina (ignorance is bliss). Hún er samt alveg áhugaverð mynd með góðum leikurum og það er betra að horfa á þetta en Bandarískt hland  um táninga í gagnfræðiskóla.

Einkunn 6.0 / 10.0 mögulegum


Klikkuð mix

Jæja, ég er búinn að vera duglegur að rækta hypem.com sl. 2 vikur og er búinn að finna fullt af góðum remixum. Ég verð auðvitað að deila því með ykkur, því ég er með svo rosalega góðan tónlistarsmekk og yfirburðarhæfileika í því að gagnrýna.

Skemmtilegasta mixið er án efa Wild Strawberries með PNAU mixað af Sam La More. Þetta er blússandi electro. Upprunalega útgáfan, en ekki eins villt! Hljóðin er mjög skemmtileg og hörð, sem kemur manni fljótt í stuð. Söngurinn er afskræmdur á mjög sexy hátt. Flott lag, en kannski aðeins of hart fyrir hjartveika.

Divine með Sebastien Tellier fékk verðskuldaða athygli á Eurovision og er eiginlega fyrsta "góða" lagið í Eurovision. Ég datt inn á rosalega mix á því lagi frá Danger, eiginlega eitt flottasta remix af lagi sem ég hef heyrt. Mér finnst það eiginlega bara betra en original :D En já, það er í sama electro fíling og villtu jarðaberin að ofan.

Tobbi félagi minn benti mér á Lykke Li þannig ég fann auðvitað brilliant mix frá Familijen á laginu Breaking it up. Lykke Li er tveggja manna band frá Skáni sem eru með svona voða krúttlega indie tónlist. Bandið snýst auðvitað um stelpuna sem syngur, en hún heitir Li Lykke. Lykke Li lofar mjög góðu og ég mæli með Little bit frá þeim/henni.

Ég fann Justice remix af Klaxons lagi sem heitir As Above, So Below, sem ég bjóst nú ekki við mig af.. en ég er svo að fíla taktinn og hljóðin í þessu mixi! Minnir mig á Bevery Hils Cop :D

Síðasta mixið er frá sama bandi og það fyrsta: PNAU. Ég er mjög hrifinn af því bandi og er sérstaklega ánægður með komu þeirra á Airwaves. Ég tek líklega plötudóm með þeim bráðlega. En mixið er af lagi sem heitir Baby, sem er mjög krúttlegt og skemmtilegt lag. Það minnir mig óneitanlega á D.A.N.C.E með Justice (söngurinn útskýrir það). Lagið er mixað af Breakbot og er nú ekki betra en upprunalega útgáfan, en þó nokkuð góð!

Jæja, þetta er allt á hypem.com ef þið hafið áhuga. Happy hunting!


Öllu gríni fylgir einhver alvara

Baggalútur geta verið rosalega fyndnir stundum.

 Þarna hinsvegar fylgir smá alvara ;)

 Síðasti punkturinn er mjög góður.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband